Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Side 73
JAT/HKG1919 hausarinn er
einstakur í sinni röð fyrir mar-
gra hluta sakir, fyrst og fremst
er hausun fisksins með allt
öðrum hætti en áður hefur
tíðkast. Þessi aðferð hefur leitt
til þess að mun betri nýting
fæst ef notuð er þessi gerð af
hausara.
Nýleg könnun á nýtingu sem
gerð var af Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa (Ú.A.) staðfestir að
flakanýting hækkar um 2-3,5
prósent á roðlausum þorsk-
flökum. Þetta hefur umtalsverð
áhrif á verðmæti þar sem nýt-
ingaraukinn er hrein aukning
við tekjur með nánast engum
tilkostnaði. Á næstu dögum
mun Ú.A. taka í notkun tvo
hausara af þessari gerð.
Hausarinn byggir á einka-
leyfi höfundar vélarinnar, Jóns
A. Þálmasonar svo kallaðri
augnpinna stýringu. Venjulega
þegar fiskur er hausaður í vél-
um situr mikið af fiskholdi á
hnakka fisksins og er hent
með hausnum, augnpinna að-
ferðin tryggir að hold situr á
búk fisksins eftir hausun. Hold
sem kemur af hausnum er á
svo kölluðu hnakkastykki
flaksins sem er dýrmætasti
hluti þess og hækkar þa'r af
leiðandi meðalverð afurðanna.
Hausarinn hefur þann
möguleika samtímis hausun
að skera kinnar, fés og klumb-
ur. Þessar aukaafurðir krefjast
ekki aukinnar vinnu þar sem
vélin gerir þetta samhliða
hausuninni. ■
'------
Sjómenn og útgerðarmenn
HÖLDUM HAFINU HREINU!
ÍW
i :i
■T !*
' i&ijiiitœn i?
©
GAMAMONUSTAN HF.
BÆ7T UMHVíRFI ■ 8ETR! FBAMTÍÐ
Sorpi má ekki henda í sjóinn, heldur á að safha því saman og koma með það að landi.
Til þess að gera sjómönnum sorphirðuna auðveldari leigir Gámaþjónustan hf. út
sorpgáma í mörgum stærðum og gerðum í skip og báta og sér um losun þeirra og um-
hirðu þegar komið er að landi.
Hafið samband við sölumenn í síma 568 8555 og fáið nánari upplýsingar.
--------j
GÁMAÞJÓNUSTAN HF.
SÍMI: 5688555
8003 Q
K GÁMAAJÓNUS'WN HF.
GÁMAÞJÓNUSTAN HF.
SÍMI: 5688555
SÚÐARVOGI 2, 104 REYKJAVÍK, SÍMI: 568 8555, FAX; 568 8534
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
73