Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1998, Qupperneq 57
Samábyrgð Islands á fiskiskipum
Samábyrgð íslands á fiski-
skipum, í daglegu tali kölluð
Samábyrgðin, var stofnuð með
lögum 30. júlí 1909 og hefur
því verið starfandi vátrygg-
ingafyrirtæki í 89 ár.
Ástæðan fyrir stofnun Sam-
ábyrgðarinnar var sú, að eftir
að útvegur íslendinga tók að
vaxa á síðustu áratugum 19.
aldar og með tilkomu vélskipa
á fyrstu áratugum 20. aldarinn-
ar, var rík þörf fyrir innlent
tryggingafélag, sem annast
gæti beinar tryggingar og end-
urtryggingar fiskiskipa.
Eftir nauðsynlegan undir-
búning hófst regluleg starfsemi
þann 1. mars 1910. Fyrsta
starfsárið 1910 voru samtals
79 fiskiskip vátryggð, þar af 36
í frumtryggingu og 43 í endur-
tryggingu. Vátryggingafjárhæð
samtals kr. 494.030 og iðgjöld
kr. 28.794. Árið 1997 voru 480
fiskiskip í tryggingu, þar af 26
frumtryggð og 454 endur-
tryggð frá bátaábyrgðarfélög-
unum. Vátryggingarfjárhæð
samtals 8,8 milljarðar króna.
4 bátaábyrgðarfélög eru nú
starfandi innan vébanda Sam-
ábyrgðarinnar: Vélbátaábyrgð-
arfélagið Grótta, Bátatrygging
Breiðafjarðar, Vélbátaábyrgð-
arfélag ísfirðinga og Vörður -
Vátryggingafélag.
Með lögum frá 29. apríl
1958 var stofnuð deild innan
Samábyrgðarinnar, Bráðafúa-
deild, sem annaðist vátrygg-
ingar allra tréfiskiskipa gegn
tjónum af völdum bráðafúa.
Bráðafúadeildin starfaði þar til
1. júlí 1987 að Aldurslagasjóð-
ur fiskiskipa var stofnaður og
yfirtók allar eignir og skuld-
bindingar deildarinnar. Til-
gangur Alduslagasjóðs var að-
allega að greiða fyrir því með
bótagreiðslum; að gömul og
óhentug fiskiskip væru tekin úr
notkun og þeim eytt og aflaði
sjóðurinn tekna með árgjöld-
um frá fiskiskipaflotanum. Ald-
urslagasjóður var lagður niður í
árslok 1990 og runnu eignir
sjóðsins til Hagræðingasjóðs
sjávarútvegsins.
Frá árinu 1970 hefur Samá-
byrgðin einnig annast slysa-
tryggingar sjómanna, ábyrgð-
artryggingar útgerðarmanna,
farangurstryggingar skips-
hafna og aðrar tryggingar til-
heyrandi fiskiskipaútgerð
Frá því að Samábyrgðin tók
til starfa árið 1910 hafa þessir
menn verið forstjórar:
Jón Gunnarsson 1910 -
1935
Carl Finsen 1935 -1940
Sigurður Kristjánsson 1940
-1956
Páll Sigurðsson 1956 og
síðan. ■
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Öryggi í fjármálum er mikilvægt til þess að fjölskyldan
geti áhyggjulaus notið lífsins. Creiðsluþjónusta
Sparisjóðanna léttir þér fjármálavafstrið, gluggabréf
heyra sögunni til og þú hefur mun betra yfirlit yfir
fjárnulin. Im geturvalið milli þriggja leiða í
Greiðsluþjónustu Sparisjóðanna:
Greiðsludreifing: Við gerum greiðsluáætlun fyrir árið og
þú borgar jafnar mánaðarlegargreiðslur.
Stakar greiðslur: Sparisjóðurinn greiðir fasta reikninga,
s.s. hitaveitu-, fjölmiðla- og rafmagnsreikninga.
Greiðslujöfnun: Komi til þess að greiðslur einstakra
mánaða séu hærri en inneign þín lánar Sparisjóðurinn
mismumnn.
Greiðsluþjónusta Sparisjóðanna er þægileg og örugg leið
til að ná jafnvægi í fjármálum þínum og heimilisins.
Sjómannablaðið Víkingur
57