Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2003, Side 6
Besta stærð mynda 20x30
Nú er ljósmyndakeppni blaðsins hafin
í annað sinn og norræni hluti keppninn-
ar er í samstarfi við flugfélagið Iceland
Express. Allir sjómenn eru hvattir til
þess að munda nú myndavélar sínar í all-
ar áttir og koma til leiks með myndir sín-
ar. í desember verða síðan fimmtán
myndir valdar, þar af þrjár sem hljóta
verðlaun, sem fara síðan í norrænu
keppnina.
Keppnisreglur eru ekki flóknar en
myndirnar þurfa að vera teknar af sjó-
mönnum. Myndaefnið má vera hvort
heldur sem er myndir teknar um borð
eða í landi í landlegum. Ekki er skilyrt
að myndirnar séu teknar á þessu ári held-
ur geta menn farið í myndasafnið sitt í
leit að myndum. Senda má inn myndir í
hvaða formi sem er, á pappír, sem lit-
skyggnu eða á stafrænu formi. Séu tök á
er óskað eftir að filmur séu sendar með
sem og að stafrænar myndir séu sendar í
mestu gæðum. Ákjósanleg stærð mynda
er 20x30 en þó ekki skilyrt. Hver ljós-
myndari má senda inn 15 myndir. Allar
ljósmyndir skulu merktar ljósmyndara og
einnig eru ljósmyndarar hvattir til að gefa
myndinni nafn og láta fáeinar línur fylgja
með sem lýsa myndaefninu.
Þessi myná Jóns Páls Ásgeirsson fékk 3. verðlaun.
Allar myndir sem berast áskilur Sjó-
mannablaðið Víkingur sér rétt til birting-
ar án endurgjalds. Sama á við um birt-
ingu mynda sem sendar verða i norrænu
keppnina en þau norrænu sjómannablöð
sem að keppninni standa áskilja sér
einnig rétt til að birta myndirnar án end-
urgjalds.
Myndir skulu sendar blaðinu í umslagi
merktu Ljósmyndakeppni Sjómanna-
blaðsins Víkings, Borgartúni 18, 105
Reykjavík. Skilafrestur er til 20. nóvem-
ber. Þá er hægt að senda myndir á tölvu-
tæku formi á iceship@hn.is merkt Ljós-
myndakeppni. Aðeins skal senda eina
mynd í einu ef sent er á tölvupósti. Með-
fylgjandi eru verðlaunamyndir úr keppn-
inni frá í fyrra.
Ljósmyndakeppni
Sjómannablaðsins Víkings 2003
Á síðasta ári efndi Sjómannablaðið
Víkingur til ljósmyndakeppni meðal sjó-
manna og voru undirtektir mjög góðar.
Blaðinu bárust nærri 70 ljósmyndir og
voru þrenn verðlaun veitt. Sigurvegari
slðasta árs var Þorgeir Baldursson frá Ak-
ureyri en hann hefur verið háseti á ýms-
um fiskiskipum. Fimmtán þeirra mynda
sem tóku þátt í keppni Vfkingsins voru
síðan sendar í norræna ljósmyndakeppni
sjómanna sem Víkingurinn er orðinn að-
ili að og fram fór 1 Osló 10. febrúar í ár.
ísland hefur ekki tekið þátt í þessari nor-
rænu keppni fyrr en nú, en rúm 15 ár
eru síðan hún hóf göngu sína. Var
keppnin hér heima því jafnframt und-
ankeppni fyrir norrænu keppnina. Þor-
geir Baldursson, er vann fyrstu verðlaun
í íslensku keppninni, eins og áður sagði,
hreppti 4 sætið í þeirri norrænu og voru
verðlaunin 2.500 norskar krónur. Það er
til mikils að vinna að taka þátt í ljós-
myndakeppni Víkingsins því þar er
möguleiki á enn frekari vinningi á nor-
rænum vettvangi.
6 - Sjómannablaðið Víkingur