Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Page 16
Bernharð Haraldsson tekur hús á Ragnari Sigtryggssyni
Ljósmyndir, Björn Valur Gíslason stýrimaður á Kleifabergi
Þau bjuggu nær alla sína tið í Norður-
götu 28 á Oddeyrinni á Akureyri
hjónin Anna Lýðsdóttir (1893-1986),
kennari frá Skriðnesenni í Bitru í
Strandasýslu og Sigtryggur Sigurðsson
(1888-1950), skipasmiður, frá Atlastöð-
um í Svarfaðardal. Pau hófu búskapinn i
Hrísey og þar fæddist þeim elsti sonur-
inn, Lýður (1921-1983), sem ungur fór
til Danmerkur og siðar Noregs að læra
tónlist, varð þar kunnur harmonikku-
leikari og sirkusstjórnandi. Hinir tveir
fæddust á Akureyri, Ragnar, f. 1925,
knattspyrnumaður og húsagagnabólstr-
ari, sem gerðist togarasjómaður, þá kom-
inn nokkuð á áttræðisaldurinn, þegar
flestir hafa sett sitt skip upp og Her-
mann, f. 1931, íþróttakennari, æskulýðs-
fulltrúi Akureyrar um áratugi, fjölhæfur
íþróttamaður á yngri árum.
Miðstrákurinn, Ragnar, er reyndar
sjaldnast nefndur skírnarnafni sínu,
heldur Gógó, gælunafninu, sem hefur
fylgt honum í gegnum lífið.
Knattspyrnan
í þá daga var fátt um leiktæki og bolt-
inn oft það eina sem bauðst. Pað varð
upphafið að löngum og farsælum knatt-
spyrnuferli, þvi pilturinn gekk í KA og
spilaði með öllum flokkum félagsins, í
þriðja flokki þegar 10 ára, og frá fimmt-
Gógó.
án ára aldri spilaði hann með meistara-
flokki allt til ársins 1961, að hann lagði
skóna á hilluna, 36 ára. Markaskor hans
er óþekkt, en hún var há. Gógó varð
fyrsti landsliðsmaður Akureyringa í
knattspyrnu, lék móti Belgum í Reykja-
vík haustið 1957 og stóð sig vel, hefði átt
að vera kominn miklu fyrr í landsliðið.
Bólstrun
En menn lifa ekki af áhugamálinu,
þótt það sé skemmtilegt. Nítján ára hóf
hann því nám í húsgagnabólstrun og
stundaði hana í 31 ár. Pá söðlaði hann
um, enda bólstrun að dragast saman, og
gerist lagerstjóri hjá Niðursuðuverk-
smiðju KJ á Akureyri. Þar var hann í
fimmtán ár og þá kominn á þann aldur,
að flestum þætti rétt að rifa seglin.
Til sjós
Eins og áður segir var hann Gógó
kominn á áttræðisaldurinn, þegar hann
fór sinn fyrsta túr til sjós. Þann starfs-
vettvang þekkti hann alls ekki af eigin
raun, hafði reyndar oft skroppið á trillu
með tengdaföður sínum, svona rétt til
gamans og til að veiða í soðið, eða bara
til að vera úti.
Því varð það honum nokkurt undrun-
arefni, árið 1997, þegar hann var orðinn
72 ára, að Sigtryggur sonur hans, sem
var og er togarasjómaður kom blað-
skellandi heim og sagði:„Pabbi, ég er
búinn að ráða þig á togara, sem
Sjómaðurinn
ATTRÆÐUR OG ENN AÐ
16 - Sjómannablaðið Víkingur