Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Page 34
Isambard Kingdom Brunel (1806-1859)
Meistaraverk Brunels
Brunel var einn af frægustu verkfræðingum Viktoríutímans - fjölhæfur snillingur,
þekktur fyrir margt fleira en stór skip. Hann hóf feril sinn á því að hjálpa föður sín-
um, sem einnig var verkfræðingur, við smíði ganga undir Thamesá í London. Síðar
kastaði hann sér út í járnbrautarævintýri og réðist sem verkfræðingur til Great
Western Railway.
Brunel reyndi einnig fyrir sér með hinar svokölluðu „loft járnbrautir”, þar sem
lestarnar voru knúðar með loftþrýstingi, sem reyndist slæm hugmynd. Sem verk-
fræðingur var hann maðurinn á bak við margar brýr, þekktust þeirra er Royal Albert
brúin.
Stóru gufuskipin hans voru öll talin kraftaverk síns tíma, en vinnan við Great
Eastern var svo slítandi, að Brunel lést árið 1859 eftir að hafa fengið heilablóðfall.
Lengi vel settu þó engin afrek í skipa-
smíðum mark sitt á þessa þróun. Árið
1492 sigldi Kristófer Kólumbus til Amer-
íku á þremur litlum skipum sem voru
ætluð til siglinga á Miðjarðarhafinu.
Flaggskip Kólumbusar og þekktasta skip
heimsflotans (kannski fyrir utan örkina
hans Nóa), Santa Maria, var aðeins tæpir
36 metrar að lengd og 80 tonn eða þar
um bil. Santa Maria var því eins og
„dvergur” við hliðina á kínversku skip-
unum hans Zheng He.
Ferð Kólumbusar markaði upphafið að
landkönnunarferðum Evrópumanna og
landnámi í öðrum álfum. Og þrátt fyrir
að Kólumbus kvartaði yfir því að Santa
Maria væri of stór til að vera gott land-
könnunarskip, þá færðust evrópskir
skipasmiðir sífellt meira í fang og skipin
stækkuðu. Urðu 50 metrar, 60 ogjafnvel
Hún er athyglisverð
þróunín þegar litið er
til tíma, og stærðar.
70 metrar. Tæknileg vandamál, sem
fylgdu stærðinni voru leyst og Evrópu-
menn tóku að sigla til allra heimshorna.
Þeir hræddust ekki lengur að hrekjast út
af flatri jörðinni og sjóskrímslum, sem
gleyptu stærstu skip, fór ört fækkandi.
Frá tré að járni
Lengi vel réðu skipasmiðir heimsins,
nema ef til vill þeir kínversku um daga
Zheng He, ekki við að smíða skip yfir
100 metra á lengd. Timbrið setti þeim
skorður. Þá skorti líka þekkingu til að
leysa tæknileg vandamál er fylgdu smíði
svo stórra skipa.
Hvernig átti til dæmis að leysa barátt-
una við ölduganginn? Strax í fornöld
höfðu menn áttað sig á því að skip sem
öslar öldurnar hefur ekki stuðning af
sjónum frá stefni til skuts. Átakið á
skipsskrokkinn verður því mikið og hætt
við að kjölurinn brotni. Einfaldasta lausnin
á þessum vanda var að takmarka lengd
skipanna.
Það var ekki fyrr en á 19. öld að verk-
fræðingar tóku að kljást við þetta vanda-
mál. Þar stóð í fremstu röð Isambard
Kingdom Brunel frá Stóra-Bretlandi sem
Bretum finnst svo merkur að í nóvember
2002 varð hann annar í röðinni í almennri
atkvæðagreiðslu sem BBC stóð fyrir og var
háð til að velja merkasta Breta allra tíma.
Aðeins Winston Churchill varð ofar.
Great Eastern
Fyrsta stóra skip Brunels var Great
Western. Lengd hennar var 72 metrar, sem
þótti, 400 árum eftir siglingu Zheng He,
mjög stórt í Evrópu. Skipið var úr timbri
og sérstaklega ætlað lil farþega- og póst-
flutninga yfir Atlantshafið á milli Evrópu
og Bandaríkjanna.
í jómfrúrferð sinni sigldi Great Western
frá Brislol til New York á fimmtán dögum.
Meðalhraðinn var átta hnútar. Það gladdi
Brunel ákaflega að þegar Great Western
lagðist að bryggju í New York þennan
apríldag árið 1838 voru ennþá 40 tonn af
kolum í kolageymslu skipsins. Eldsneytis-
birgðir voru ekki lengur vandamál á langri
siglingu. Með góðri skipahönnun hafði
eldsneytisvandinn verið leystur.
Næsta verkefni Brunel var Great Britain,
fyrsta stóra járnskipið sem byggt var til út-
hafssiglinga. Því var hleypt af stokkunum í
Bristol árið 1843 og var 98,2 metrar á
lengd. Eftir langa og farsæla ævi endaði
Great Britain sem safngripur í dokkinni
þar sem hún var byggð.
Freedom Ship: 1400 metrar, er það jramtíðin?
Knock Nevis: 458 m., um 197t
Normandie:
Titanic: 269 m.
eftir 1910
Great Britain: 98 m., um 1840
Freigdtan Jylland: 71. m.
u m 1860
Great Eastem: 211 m.
Rómverskt hveitiflutninga-
skip: 54 m., þriðja öld e. Kr.
Ormurinn langi: 37
m., um 990
Kínverskt skip úrflota Zheng
He: 120-134 m„ 15. öld
Santa Maria: 36. m„
um 1490
Flaggskipið Vasa: 61. m„
um 1620
Árið 1852 tók Brunel að
íhuga byggingu risaskips
sem yrði allt að 200 metrar
að lengd.
Hugsunin að baki svo
stóru skipi var, að það gæti
borið næg kol til að sigla
alla leiðina til Ástralíu án
þess að laka eldsneyti á leið-
inni. Brunel setti öryggið á
oddinn og hannaði skip
með tvöföldum skrokki og
valnsþéttum skilrúmum eft-
ir bolnurn þverum og endi-
löngum.
Vinnan við Great Eastern,
en svo nefndist risaskip
Brunels, varð þó að martröð
fyrir verkfræðinginn. Mikil
fjárhagsleg vandræði, óhöpp
og erfiðleikar urðu honum
34 - Sjómannablaðið Víkingur