Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Síða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Síða 50
Hinn 17. nóvember 1868 var Súesskurðurinn vígður að viðstöddu miklu fjölmenni. Hátíðarhöldin voru gríðarleg og margir þjóðhöfðingjar mcettir til Port Said en myndin er tekin þar við þetta tækifœri. Ljósm.: Otto Herschan/Hulton Archive Bandaríkin keyptu eyrisvirði í fyrirtæk- inu. Frakkar voru mun áhugasamari og fjárfestu í um það bil helmingshlut en Egyptar voru eilítið hógværari. Á þeim fjórum árum sem voru liðin síðan Said blessaði fyrirtækið, í nóvem- ber 1854, hafði de Lesseps nú loks náð að hnýta hina pólitísku enda og tryggja fjármagn í verkið. Verkfræðingarnir voru tilbúnir með uppdrætti og verkáætlanir og í apríl 1859 tók de Lesseps fyrstu skóflustunguna að heilli borg, Port Said. Saltbarin ströndin og óendanlegir sand- flákar blöstu við. Úti fyrir var grunnsævi sem hélt stærri skipum frá landi. Þarna mitt í auðninni og einskis manns landi skyldi rísa hafnarborg og endastöð skipa- skurðarins við Miðjarðarhaf. í fjarska flökti tíbráin og bjó til vatn við sjóndeildarhringinn. Hún blekkti þó engan mann. Þarna var ekkert vatn að finna, aðeins hinn hræðilega Cham-sin, óhugnanlega sandstorminn sem gróf allt á svipstundu sem á vegi hans varð. Siglí eftir Súes. Eiðið, sem de Lesseps hafði valið að grafa í gegnum, var lífvana eyðimörk. Því var það að um leið og Port Said byrjaði að verða til var annar hópur verkamanna tekinn til við að framlengja undur Nilar- fljóts. Grafa átti vatnsveituskurð úr Níl og tengja hann Port Said í norðri og í suðri hinni gömlu hafnarborg, Súes, við Rauðahafið. í árhundruð hafði Súes verið miðstöð kaupmanna á leið til og frá Eg- yptalandi. Slóðin til Kairó, frá Súes, var þétttroðin þúsundum fóta, manna og dýra. Súes stóð hins vegar Kairó langt að baki og var í raun ekki annað en smá- þorp í eyðimörkinni sem þreifst ein- göngu vegna skipaumferðarinnar um Rauðahafið. Vatnsból voru fá og léleg í þorpinu og ekkert vatn afgangs handa gróðri. íbúar voru um 3000 talsins, bær- inn skítugur og illa þefjandi, hótelin al- ræmd fyrir flugur sem sóttu í augu manna eins og birnir í hunang og veggjalýs sem undu sér hvergi betur en á mannslíkamanum. Það var því engin furða að ferðamenn voru þeirri stundu fegnastir þegar þeir sneru baki við bæn- um og höfninni sem var krök af mannætuhákörlum. Vatnsleiðsla de Lesseps breytti þessu og færði blessun Nílar inn í sandauðnina sem urn aldir hafði verið neitað um lífs- kraft vatnsins. 50 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.