Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2006, Side 66
Niagarafossarnir; þetta er sá hluti hans sem tilheyrir Kanada
og heitir Horseshoe. Ljósm.: Guðmundur Pétursson
Breytt heimilisfang, látið vita
Kæru lesendur, undanfarið hefur svo-
lítið borið á því að þið hafið staðið í bú-
ferlaflutningnum og Víkingurinn þá
stundum villst í gamla heimilisfangið.
Sem betur fer hafa margir látið vita af sér
en við viljum endilega að Víkingurinn
fari alltaf á réttan stað.
Tilkynnið því nýja heimilisfangið og
getið þess jafnframt hver tengsl ykkar við
Víkinginn eru. Hvort þið séuð félags-
menn í FFSI, Verðanda eða Vísi?
Ég veit að tvö síðarnefndu félögin eru
sammengi í FFSÍ en þannig er mál með
vexti að Víkingurinn er sendur út eftir
fjórum listum: félagaskrám þessara
þriggja félaga og skrá yfir áskrifendur
utan FFSI sem er í mínum höndum. Ég
get þannig breytt einum listanum en
breytingar á hinum þremur þurfa að fara
í gegnum hendurnar á forsvarsmönnum
viðkomandi félags.
Þetta er svolítið snúið (og ég stundum
óttalegur flækjufótur) en ég veit að þið
áttið ykkur á þessu.
Niagara
Já, já, þið megið hætta
að netja á mig. Ég er búinn
að fletta þessu upp í þykku
bókinni minni. Með stór-
góðu viðtali Þrastar Helga-
sonar við Jón G. Magnús-
son, sem birtist í síðasta
tölublaði, var mynd af Ni-
agarafossunum. Þó aðeins
öðrum þeirra en þeir eru
tveir. Sá á myndinni í 1.
tbl. tilheyrir Bandaríkjun-
um (The American Fall)
og er tilkomuminni en sá
stærri (Horseshoe Fall) er
Kanadamegin og hærri. Á
milli er Geitarey.
Svo mikill er alvöruþungi Víkingsins í
þessu máli að sendiboði blaðisins, Guð-
mundur Pétursson, fór á staðinn og tók
mynd af stærri fossinum, Horseshoe, sem
birtist hér.
Annars megið þið, lesendur góðir,
gjarnan senda Víkingnum myndir af
náttúruundrum sem þið hafið heimsótt
og fáein orð með.
Sjómannadagurinn 2006
Við í ritnefnd Víkingsins viljum nota
þelta tækifæri og óska öllum sjómönn-
um, nær og fjær, hjartanlega til hamingju
með daginn. Njólið hans vel.
LOGMENN
BORGARTfJN] 18
- Sérhæfing í vinnuréttarmálum.
- Innheimta vangreiddra launa
- Uppgjör slysa- og skaðabóta
- Gallamál og fjölskylduréttur o.fl.
Jónas Haraldsson, hrl.,
Jónas Þór Jónasson, hdl.
Sími: 562 9066 Fax: 562 9096
Stórás 6 • IS-210 Garöabæ
Slml: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
Okkar bestu kveðjur
á sjómannadegi
66 - Sjómannablaðið Víkingur