Náttúrufræðingurinn - 1932, Qupperneq 28
58
NÁTTÚRUFR.
anna undir öðrum. Tvenn eru þau farartæki, sem plönturnar
nota fyrir frjóin, nefnilega vindurinn og dýrin. Vindurinn fræv-
ar allar fræplöntur með óásjálegum blómum, þessar plöntur
framleiða ósköpin öll af frjókornum, svo nóg sé fyrir vanhöld-
um, og vaxa oft í miklum breiðum (t. d. grösin) til þess að
tryggja frævunina. Hjá þessum plöntum eru bikarblöðin og
krónublöðin kynblöðum plöntunnar til hlífðar.
En fjöldinn allur af plöntum, nefnilega allur sá aragrúi,
sem ber ásjáleg blóm, frævast af skordýrum, og það er nú saga
að segja frá því. Skordýrafrævunin hefir þann kostinn, að hún
er tryggari en vindfrævunin, og þess vegna hafa hinar æðri
plöntur almennt sókst eftir henni. Aðalatriðið fyrir blómið er
þetta, að láta dýrin flytja frjóið frá einni plöntu til annarar,
en hvernig á að fá þau til þess. Þennan vanda hafa blómin leyst
með því, að framleiða varning, t. d. hunang, sem skordýrunum
finnst eftirsóknarverður, og svo er þannig búið um hnútana, að
meira eða minna af frjóinu tollir við þau, er þau fljúga á næsta
blóm, en það yrði of langt mál að rekja hér. En hvernig í dauðan-
um geta nú skordýrin vitað í hvaða blómum er hunang, þar sem
fjöldi blóma frævast af vindi, og gera því ekkert til þess að
hæna skordýrin að? Jú, það er með blómin eins og beztu kaup-
síslumenn, þau láta sér ekki nægja að framleiða vöruna, þau
auglýsa hana einnig, og á þessu sviði taka þau litina í sína þjón-
ustu. Litur blómanna er einungis til þess að hæna skordýrin að,
rákirnar á krónublöðum margra plantna, er leiðbeining um
hvar hunangið er að finna.
Merkilegt er það, að litur blómanna fer mjög eftir því,
af hvaða skordýrum, eða skordýraflokkum blómin frævast.
Hvít blóm frævast mjög af skordýrum, sem eru á flökti á nótt-
unni og kvöldin, rauðleit blóm frævast mikið af dagfiðrildum
(fiðrildum, sem eru á flökti á daginn), blá blóm af býflugum,
gulleitt blóm af fuglum, o. s. frv. Strax er frjóvgun hefir átt sér
stað, breytir blómhlífin lit, verður óásjálegri og fellur loks af,
plantan hefir nú náð tilgangi sínum, auglýsingin er því tekin niður,
svo skordýrið eyði ekki tímanum í að heimsækja það til einsk-
is, heldur haldi sér að öðrum einstaklingum sömu tegundar, eða
öðrum blómum á plöntunni, sem ennþá eru í æsku.
Blómin verða að heita á hjálp dýranna til þess að flytja
frjóið á milli. Þegar frjógun er lokið, myndast fræ og aldin, en
þá er að koma þeim út í heiminn, eins langt frá móðurplöntunni
og hægt er, fræin eru vísar nýrrar kynslóðar, sem á að vinna ný