Náttúrufræðingurinn - 1932, Síða 17
NÁTTÚRUFR.
79
Ýmislegt.
Með hringum þeim, sem útbýtt verður, munu verða send
eyðublöð til að útfylla. Er mikið undir því komið að þau séu
nákvæmlega og samvizkusamlega útfyllt. Á þau á að skrá:
1. Númer hringsins og einkennistölu.
2. Nafn (tegund) fuglsins, sem merktur var.
3. Hvar hann var merktur (bæjar- og sveitarnafn).
4. Hvenær hann var merktur (mánaðardag og ár).
5. Aldur fuglsins (ungi eða fullorðinn fugl).
6. Frekari upplýsingar ef nokkrar eru. (Hvort karlfugl
eða kvenfugl, ef úr því verður skorið; ef ungi er merkt-
ur í hreiðri, skal þess getið, hvort fleiri af systkinum
hans voru merkt og þá með hvaða númerum o. s. frv.).
Fyrir hvern stærðarflokk hringanna ætti alltaf að nota
sérstakt eyðublað. Eins fyrir hringa sama stærðarflokks, ef
númer þeirra eru ekki samhangandi. Fugla, sem maður þekk-
ir ekki með vissu, ætti aldrei að merkja. Eins er mjög áríð-
andi að tegundarnafn fuglsins sé nákvæmlega tilgreint á eyðu-
blöðunum. Nöfn eins og önd, máfur o. s. frv. eru einskis virði,
því að hvert þeirra á við margar tegundir fugla.
Á hverju hausti, í síðasta lagi fyrir áramót, eiga eyðublöð-
in eftir að þau hafa verið útfyllt, að sendast til Náttúrugripa-
safnsins. Ef sami maður vill halda áfram að merkja, verða
honum sendir nýir hringar og eyðublöð. Ef hann hefir hringa
afgangs frá fyrra ári' ætti hann þó að nota þá fyrst. — Ef sá,
sem merkir, fær einhverjar upplýsingar um fugla, sem hann
hefir merkt, ef hann t. d. verður var við að þeir sækja aftur til
fornra átthaga sinna, eða ef þeir verpa á sömu slóðum, eða í
sama hreiðri, eða ef hann fær einhverja vitneskju um sam-
heldni hjóna eða þesskonar, þá er hann beðinn að tilkynna það
um leið.
Mjög æskilegt væri, að þeir, sem tekið hafa að sér að
merkja, vildu á vorin skrifa hjá sér komudaga hinna ýmsu far-
fugla. Eins burtfarartíma á haustin, þó að hann verði ekki eins
nákvæmlega ákveðinn. Þessi atriði eru mjög þýðingarmikil og
væri æskilegt að fá slíkar skýrslur úr sem flestum héruðum
landsins og um lengri tíma.
Mjög mikilsvert væri að þeir, sem tekið hafa að sér að
merkja, reyndu að fá fleiri áreiðanlega menn til að taka þátt
í starfinu. Má búast við, að margir mundu vilja stuðla að fram-
gangi málsins, ef þeim væri til fullnustu kunnur tilgangur og-