Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 4

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 4
Náttúrufræðingurinn JÓN JÓNSSON JARÐFRÆÐINGUR 1910-2005 Jón Jónsson jarðfræðingur lést þarrn 29. október sl. 95 ára að aldri. Þar með er fallinn frá síðasti fulltrúi frumherjanna í íslenskri jarðfræðingastétt. Jón fæddist að Kársstöðum í Landbroti 3. október 1910. Námsferill hans var óvenjulegur um margt. Bamalærdóm og vísi að unglingafræðslu hlaut hann í Þykkvabæ, fór síðan 1928 að Eiðum og sat þar tvo vetur í Alþýðuskólan- um. Haustið 1933 hélt hann til Svíþjóðar og vann þar næstu árin við ýmis störf jafnframt því sem hann sótti sér fræðslu á námskeiðum og í bréfaskólum. Námið var þó æði óskipulagt og sundurleitt. Tíminn leið og Jón kom víða við, bæði í Svíþjóð, Þýskalandi og á íslandi. Árið 1945 settist hann að í Uppsölum og kynntist Tómasi Tryggva- syni, sem þá hafði nýlega lokið jarðfræðinámi við há- skólann þar. Fyrir tilstilli Tómasar kyimtist Jón fleiri jarð- fræðingum og jarðfræðiprófessorum og tók að kynna sér fag þeirra. Síðan fékk hann vinnu sem aðstoðarmaður við jarðfræðistörf og sumarið 1949 tók hann þátt í leiðangri til Grænlands undir stjórn dr. Lauge Koch og stundaði stein- gervingaleit. Hann starfaði síðan sem rannsóknarmaður á steingervingasafninu í Uppsölum. Hann tók einnig þátt í sænskum leiðöngrum og jarðfræðirannsóknum á Hoffells- sandi 1951-1952. Sumarið 1954 fór Jón til íslands og fékk þá þann starfa að gera jarðfræðikort af Reykjavík og nágrenni með Tómasi Tryggvasyni. Samsumars giftist hann Guðrúnu Guðmundsdóttur, eftirlifandi eiginkonu sinni. Þegar hér var komið sögu má segja að Jón hafi verið orðinn jarð- fræðingur að atvinnu, en hann hafði engin prófréttindi og nú var gengið ákveðið til verks að kippa því í liðinn. Jón safnaði saman sundurleitum námsvottorðum sínum og kúrsum, fékk þau með harðfylgi dæmd sem jafngildi stúdentsprófs haustið 1954 og innritaðist þá strax í jarðfræðideild Uppsalaháskóla. Það haust varð Jón 44 ára. Nú var skipt um gír, námið var þaulskipulagt og gekk hratt. Vorið 1958 var því lokið með tvöfaldri útskrift þegar hann tók kandídats- (fil.kand.) og licentiat-próf (fil.lic.) sama daginn. Lokaritgerðin fjallaði um afstöðubreytingar láðs og lagar við ísland og um kísilþörunga í sjávarseti. Jón hóf störf á Raforkumálaskrifstofunni (síðar Orku- stofnun) sama ár og hann lauk prófum. Framan af voru verkefni hans einkum á sviði neysluvatns- og heitavatns- öflunar. Boranir eftir heitu vatni voru þá komnar á skrið og heppnuðust víða vel undir hans tilsögn. Hann vann einnig sem jarðhitaráðgjafi í ýmsum löndum Mið-Ameríku og Afríku á vegum Sameinuðu þjóðanna og fleiri stofnana. Jón fékkst mikið við jarðfræðikortlagningu á starfsferli sínum og vann frábært brautryðjandastarf við sundur- greiningu og kortlagningu hrauna á Reykjanesskaga. Árið 1980 lét Jón af störfum fyrir jarðhitadeild Orkustofnunar en hélt þó áfram eigin rannsóknum og ráðgjöf í neyslu- vatns- og jarðhitamálum. Á þessi skeiði beindust augu hans mjög að Eyjafjöllum og af þeim gerði hann jarðfræði- kort sem út kom ásamt ítarlegri lýsingu 1989. Á síðustu árunum beindist áhugi hans í auknum mæli að átthögun- um í Vestur-Skaftafellssýslu og hinum miklu hrauna- flæmum frá Eldgjá, Lakagígum og Hálsagígum. Síðustu rannsóknarleiðangrana fór Jón á það svæði árið 2002, þá á 92. aldursári. Þótt Jón hæfi ekki jarðfræðistörf fyrr en á fimmtugsaldri spannar starfsferill hans á því sviði vel á sjötta tug ára og er lengri en flestir jarðfræðingar geta státað af. Jón Jónsson var öflugur vísindamaður sem sést m.a. á þeim fjölda greina sem hann skrifaði um fræði sín í skýrslur, blöð, bækur og tímarit, bæði íslensk og erlend. Hann var heiðursfélagi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi og einn afkastamesti greinahöfundur Náttúrufræðingsins frá upphafi. í efnisyfirliti tímaritsins er hann skráður fyrir 77 titlum um fjölmörg efni tengd jarðfræðum. Fyrsta greinin kom 1951, það voru minningarorð um sænskan jarðvísindamann og íslandsvin, en fyrsta jarðfræðigreinin birtist 1952 og var ávöxtur rannsóknanna á Hoffellssandi. Hún nefnist „Forn þursabergslög í Hornafirði". Flest ár þaðan í frá birtist eitthvað eftir hann í ritinu og stundum margar greinar. í 55. árgangi (1985) urðu þær t.d. sjö. Síðasta greinin kom 2002, „Poas og Katla", en þar ber hann saman þessi tvö miklu eldfjöll. Raunvísindamönnum er oft skipt í tvo hópa, þá sem stunda frumrannsóknir, draga saman þekkingu, skrifa lýsingar og setja fram rannsóknargögn, og hina sem nota þessar rannsóknir og grundvallargögn til að smíða úr þeim kenningar eða fræðilegar skýjaborgir og verða gjarnan frægir af. Kenrúngar falla og frægðin dofnar, en vandaðar frumrannsóknir standast tímans tönn og bera gerendum sínum góðan orðstír um aldir. Því mun Jóns Jónssonar lengi minnst í heimi jarðfræðanna. Náttúru- fræðingurinn kveður hinn gengna vísindamann og greina- höfund með þökk og virðingu. Árni Hjartarson. 74

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.