Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 5
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
María Ingimarsdóttir og Erling Ólafsson
Spánarsnigill finnst
Á ÍSLANDI, ÞVÍ MIÐUR ...
Það bar til tíðinda í ágúst árið 2003 að ungur maður á ferð um vesturbæ
Reykjavíkur rakst á sérkennilegan snigil sem renndi sér þar eftir gangstétt.
Það var óvenjuleg stærð snigilsins og litur hans sem athyglina vakti.
Kvikindið var handsamað og því komið til Náttúrufræðistofnunar Islands
til frekari athugunar. Aðra eins skepnu hafði ekki fyrr borið fyrir augu
okkar höfundanna. Að nokkrum tíma liðnum vöknuðu grunsemdir um
hvers kyns var, er okkur barst í hendur texti úr bók þar sem varað var við
innfluttum, varasömum tegundum á Norðurlöndum.1 Þá var sniglinum
snarlega komið í hendur sérfræðings á þessu sviði í Svíþjóð. Hann
staðfesti þann grun okkar að um spánarsnigil væri að ræða - því miður,
eins og úrskurðurinn hljóðaði. Annar samskonar snigill fannst síðan í
Ártúnsholti í Reykjavík í byrjun september 2004.
ÚTLIT OG SKYLDAR
TEGUNDIR
Spánarsnigill (Arion lusitanicus
Mabille, 1868) (1. og 2. mynd) til-
heyrir ætt snigla sem ekki bera kuð-
ung, Arionidae. Tegundir ættar-
innar finnast einkum í Evrópu og í
norðvestanverðri álfunni eru þær
um tíu talsins.4 Þrjár tegundanna eru
afar stórvaxnar. Ein þeirra, svart-
snigill (Arion ater (Linnaeus, 1758)),
Oftast veltum við því lítið
fyrir okkur þó stöku útlend
kvikindi finnist hér á
landi, en þetta er tegund sem rétt er
að hafa hugfasta og vera á varðbergi
gegn. Víða má finna upplýsingar um
spánarsnigil og hefur margt verið
ritað um hann og birt, til dæmis á
veraldarvefnum. Textinn hér á eftir
er þó einkum byggður á greinum
eftir von Proschwitz og Winge
(1994),2 Temey (1998)3 og Weidema
(2000)1 og verður ekki frekar vitnað
til þeirra heimilda.
1. mynd. Spánarsnigill (Arion lusitani-
cus) í vesturbæ Reykjavíkur 11. cígúst
2003. -Iberian slug (Arion lusitanicus),
Reykjavik, 11 August 2003. Ljósm./Photo
Erling Ólafsson.
Náttúrufræðingurinn 73 (3-4), bls. 75-78, 2005
75