Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 7
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
3. mynd. Svartsnigill (Arion ateri í Hafnarfirði 8. júní 2005. - Black slug (Arion
ateri, Hafnarfjörður, 8 june 2005. Ljósm./Photo Erling Ólafsson.
Fæða
Sniglar eru almennt hin mestu át-
vögl sem éta u.þ.b. hálfa þyngd sína
á dag. Flestir nærast á jurtum, aðrir á
hræjum og rotnandi leifum. Því
verður seint haldið fram að spánar-
snigill sé matvandur og fæðuskortur
er nokkuð sem hamr kymúst líklega
ekki því hann étur nánast allt lífrænt
sem á vegi hans verður. Hann sækir
í safnhauga, étur hræ og hundaskít,
svo eitthvað sé nefnt, og jafnvel aðra
snigla. Það gerir hann þó sérlega illa
þokkaðan hve sólginn hann er í
ýmsar plöntur sem fólk ræktar í
görðum sínum. Það getur vissulega
reynst ræktandanum sárt að sjá
uppáhaldsplönturnar hverfa ofan í
kvikindið á örskömmum tíma eftir
langtíma natni grænna fingra.
Snigillinn notar lyktarskynið til að
finna fæðu. Lyktsterkar plöntur, s.s.
laukar, kryddjurtir og flauelsblóm,
eru því sérlega vinsælar og gjarnan
éhrar fyrst. Svo má nefna páskaliljur
á vorin, stjúpur og rósir og hvaðeina
sem stendur til boða. Þekkt er að
spánarsnigill hafi upprætt kartöflu-
rækt með því að éta kartöflugrösin í
uppvexti.
Lífsferill
I nágrannalöndum okkar tekur
lífsferillinn eitt ár. Kynþroska dýr
deyja á haustin en ungir sniglar, allt
frá nýskriðnum úr eggi upp í
næstum kynþroska, grafa sig niður í
jörðina til að þrauka veturirtn. Að
vori fara sniglamir svo aftur á kreik.
Eins og margir sniglar er spánar-
snigill tvíkynja, þannig að þegar
tveir sniglar makast frjóvga þeir
hvor annan; ekki þarf einu simri tvo
til því hann getur vel frjóvgað sig
sjálfur. Hver einstaklingur verpir 20
til 30 eggjum í einu og getur verpt
um 400 eggjum á lífsleiðinni. Sem
betur fer er dánartíðnin yfirleitt
mjög há en mikil eggjaframleiðsla
þýðir þó að í hagstæðu árferði á hver
og einn snigill möguleika á að fjölga
sér svo um munar. Eggjunum er
oftast verpt í litlar holur sem
sniglarnir grafa í jörðina. Einnig
verpa þeir undir lauf sem liggja á
jörðimú og í rotnandi safnhauga.
Eggin klekjast á 3,5-5 vikum, eftir
aðstæðum, og sniglanúr verða kyn-
þroska á u.þ.b. fimrn vikum.
Hvers VEGNA VERÐUR
SPÁNARSNIGILL
SKAÐVALDUR?
I nágrannalöndum okkar er spánar-
snigill nú þegar orðinn alræmd
plága. I upprunalegum heimkynn-
um sínum á fberíuskaga er hann
hvorki algengur né til vandræða en
þar eru lífsskilyrði honum erfið
vegna langvarandi hita og þurrka.
Slíkt loftslag er sniglum afar
óhagstætt. Með mikilli eggjafram-
leiðslu aukast líkur á að einhver
afkvæmi komist á legg á þessum
slóðum. Spánarsnigill hefur haldið í
frjósemi sína og mikla framleiðslu
eggja í nýjum heimkynnum. í rakara
og úrkomusamara loftslagi norðar í
álfunni kemst aftur á móti miklu
stærri hluti ungviðisins til fulls
þroska. Þar getur fjöldinn því orðið
gífurlegur á skömmum tíma og
skaðinn af völdum þessara stór-
vöxnu og gírugu átvagla þar með
tilfinnanlegur. Hvorki svartsnigill né
rauðsnigill hefur viðlíka viðkomu og
skaðsemi af þeirra völdum er talin
óveruleg.
Það fer ýmsurn sögum af þessum
óargadýrum og fjölda þeirra. Þess
hefur t.d. verið getið að garðeigandi
í Danmörku hafi safnað 10 þúsund
sniglum í garði sínum yfir sumarið.
Ekki er óalgengt að fólk hafi tínt um
100 snigla á nóttu. Þá ku hópur íbúa
í dönskum bæ hafa safnað 80 kg af
spánarsmglum til að sýna bæjaryfir-
völdum fram á að um raunverulegt
vandamál væri að ræða sem bregð-
ast þyrfti við. Fyrir utan skaða sem
sniglarnir geta valdið þykir afar
óspemrandi að tipla um slímugar
grasflatir þar sem herskari snigla
hefur farið um.
Þurfum VIÐ AÐ HAFA
ÁHYGGJUR?
Sú staðreynd liggur nú fyrir að
spánarsnigill hefur náð að berast til
íslands. Það hefur samrarlega ekki
komið á óvart, því við íslendingar
flytjunr til landsins fjöldann allan af
lifandi plöntunr í pottunr eða jarð-
vegshnausum, enda erum við mjög
fús til að þreifa okkur áfram í garð-
ræktinni og bjóða harðneskjulegum
aðstæðum birgirtn með tilraunum í
77