Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 8

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 8
Náttúrufræðingurinn ræktun framandi og spennandi plöntutegunda. Þó til þessa hafi aðeins tveir spánarsniglar fundist hér með vissu er full ástæða til að vera á varðbergi. Sniglamir fundust ekki sama árið og hvor í sínum borgarhlutanum. Ekki er líklegt að þeir hafi verið einir á ferð og ekki skal gleyma því að jafn sjálfkyn- hneigðar lífverur og sniglar eru þurfa ekki lífsförunaut til að auka kyn sitt. Það er háttur landnema að fara rólega af stað í nýjum heimkynnum en að einhverjum árum liðnum verður svo gjaman sprenging í við- komu. Það er full ástæða til að velta vöngum yfir möguleikum spánar- snigils til að festa sig í sessi hér á landi. Hörð frost á snjólausa jörð og mikill hiti og þurrkur halda fjölda snigla í skefjum en úthafsloftslag eins og hér á landi skapar kjör- aðstæður fyrir spánarsnigil. Frosta- kaflar á vetrum kunna þó e.t.v. að halda eitthvað aftur af sniglunum. Fáar dýrategundir á norðurslóðum leggja sér spánarsnigil til munns þar sem hann er mun slímugri en t.d. svartsnigillinn og þykir ekki ýkja kræsilegur til átu. Þó er vitað til þess að broddgeltir, greifingjar og villi- svín éta spánarsnigla, einnig aliendur.2 Hérlendis er vart að vænta aðstoðar af því tagi í baráttu við sniglana. Því er hætt við að spánarsnigill nái hér traustri fótfestu í náinni framtíð. Fólk er hvatt til að vera á varðbergi og uppræta alla spánarsnigla sem á vegi þess verða, þó e.t.v. kunni baráttan að verða torveld. Að lokum vilja höfundar koma á framfæri óskum um að fá í hendur alla meinta spánarsnigla sem lesendur kunna að rekast á næstu árin til að geta fylgst með því hverrdg þeim vegnar. SUMMARY Iberian slug (Arion lusitanicus) shows up in Iceland The Iberian slug, which originates from the Iberian Peninsula, started to distribute north- and eastwards in Europe after 1960, reaching the Nordic countries in mid 1970ies. This large and very productive slug has tumed out to be a serious pest in parks, gardens and agricultural landscapes in the moist climate in northem Europe, conditions that are obviously more favourable than those dominating in the dry and sunny Iberian Peninsula. The species had reached the Faroe Islands in 1996 and now the remote Iceland seems to be its next target. The first Iberian slug was recorded in Reykjavik in August 2003, the second in early September 2004. Probably these are only accidental records. Still, there is every reason to believe that this is, sadly, only the beginning of the introduction of the Iberian slug to Iceland. Þakkir Finnendum spánarsniglanna tveggja, Magnúsi B. Skarphéðinssyni og Agnesi Einarsdóttur, er þakkað fyrir að hafa komið þeim í okkar hendur. Ted von Proschwitz, Gautaborg, krufði báða sniglana og greindi þá á kynfærunum. Fær hann þakkir okkar fyrir aðstoðina. Heimildir 1. Weidema, I.R. (ritstj.) 2000. Introduced species in the Nordic countries. Nord 2000: 13. 242 bls. 2. von Proschwitz, T., & K. Winge 1994. Iberiaskogsnegl - en art pá spredning i Norge. Fauna 47.195-203. 3. Terney O. 1998. Spansk skogsnegl alias dræbersneglen. BioNyt 104. 3-22. 4. Kemey, M.P. & R.A.D. Cameron 1979. A field guide to the land snails of Britain and North-west Europe. Collins, London. 288 bls. 5. Eggert Olafsen & Biarne Povelsen 1972. Reise igiennem Island foranstaltet af Videnskabernes Sælskab i Kjobenhavn. Soroe. 1042 bls. 6. Bloch, D. 2003. Morsnigilin ella hin spanski snigilin. Frodi 1/2003. 16-18. PÓSTFANG HÖFUNDA/AuTHORS’ Addresses María Ingimarsdóttir mariai©ni.is Erling Ólafsson erling@ni.is Náttúrufræðistofnun íslands Hlemmur 3 P.O. Box 5320 IS-125 Reykjavík Um höfundana María Ingimarsdóttir (f. fræði frá Háskóla íslands sama háskóla 2004. Hún ÍMkjjp’' hefur starfað sem sér- ^ fræðingur á Náttúru- fræðistofnun íslands frá Erling Ólafsson (f. 1949) r lauk BS-gráðu í líffræði frá Háskóla íslands 1972 og Fil.Dr. í dýraflokkun- arfræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 1991. Hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun íslands síðan 1978. 78
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.