Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 21

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 21
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 2. mynd. Nornakrabbi. a) Yfirlitsmynd afkvendýri með skjaldarlengd 9,0 cm. Á næstaftasta útlimaparinu er vinstri fóturinn mun smærri en sá hægri, sem bendir til að dýrið hafi misst þann vinstri og að nýr hafi vaxið í hans stað. b) Framendi skjaldar sama dýrs séðurfrá hliö, sem sýnir þrjá tinda standafram úr skildinum. c) Aftasti útlimur hægra megin ásama dýri. Vakin er athygli á krepptri kló á enda fótarins og að festing fótarins er ofar og nær skildinum en annarra fóta. - a) Fernale Paromola cuvieri with carapace length of9.0 cm (rostrum excluded), whole animal, dorsal view. b) Anterior part ofcarapace, lateral view, c) a close-up ofthe posterior appendages, posterior view. Ljósm./photo: Guðmundur Þór Kárason. íslands (NI-17473, Guðmundur Guðmundsson, munnl. uppl.). Að lokum er svo eintakið sem fannst í BIOICE verkefninu árið 1996, sem einnig er af svipuðum slóðum (3. mynd). Þyrnikrabbi virðist einvörðungu finnast á miklu dýpi og aðallega á milli íslands og Grænlands. Ekki er mikið um að fiskveiðar séu stundað- ar svo djúpt og því litlar líkur á að þessi krabbategund veiðist. At- hyglisvert er að tegundin finnst við ísland beggja vegna Reykjanes- hryggjar, sem gæti bent til þess að hún sé víðar djúpt suður og vestur af landinu. Sama máli virðist gegna um aðra skylda tegund, ígulkrabba (Paralomis bouvieri), sem er minni og þyrnóttari en þyrnikrabbi. Sú tegund fannst tvisvar hér við land í Ingolf-leiðangrinum, annars vegar við Suðausturland og hins vegar með þyrnikröbbum djúpt vestur af landinu.1 Utan íslands farrnst þyrnikrabbi á tveimur öðrum stöðum í leiðangri Ingolfs á hafsvæðinu milli Islands og Grænlands, en Grænlandsmegin við miðlínuna á milli landanna1 (3. mynd). Þar með eru upptalin þau tilvik þar sem vitað er með nokkurri vissu að tegundin hafi fundist. Sumir telja þó að þymikrabbi hafi fundist í tvígang í sovéskum rann- sóknaleiðöngrum árin 1958 og 1967 við Suðurskautslandið, annars vegar í Kyrrahafi og hins vegar í Atlants- hafi (Birstein og Vinogradov 1967, 1972).sbr'4 Margt bendir þó til að ein- tökin frá Suðurskautslandinu til- heyri öðrum skyldum tegundum, en ekki þymikrabba,3,9,10 en því em ekki allir sammála.4,8 Nornakrabbi Heiti og lýsing Islenska nafnið er þýðing úr Norður- landamálum en nomaheitið virðist fyrst hafa verið notað í sænsku, þá norsku og síðan í dönsku (danska: heksekrabbe, hekse = nom).11 Á ensku hefur tegundin verið kölluð kassakrabbi (Box crab, box = kassi).12 Vísindaheiti krabbans er Paromola cuvieri (Risso, 1816). Höfundum hafa borist fjögur eintök af þessari tegund. Það fyrsta veiddist á 150-160 metra dýpi í botn- vörpu m/b Sæmundar HF-85 suður af Krísuvíkurbjargi snemma í sept- ember 2003. Þetta var kvendýr með 7,4 cm langan skjöld og 6,8 cm breiðan. Annað eintakið, sem einnig var kvendýr, fékkst 18. maí 2004 í humarvörpu m/b Hafnarbergs RE- 404. Það var með 9,0 cm langan og 8,2 cm breiðan skjöld og veiddist suður af landinu í Meðallandsbug (63°36' N, 17°41' V) á 130 m dýpi. Þriðja eintakið var karldýr með 8,7 cm langan og 8,0 cm breiðan skjöld. Það veiddi m/b Gulltoppur ÁR-321 með humarvörpu í Háfadjúpi við Vestmannaeyjar (63°27' N, 19°56' V) á 170 m dýpi þann 16. maí 2005. Fjórða eintakið veiddist á 150 m dýpi þann 26. ágúst 2005 í humar- vörpu m/b Þóris SF-77 í Meðal- landsbug (63°33' N, 17°38' V, 3. mynd). Það var kvendýr með 9,9 cm langan og 8,7 cm breiðan skjöld. 91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.