Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 36
Náttúrufræðingurinn
Fyrir 2,5 milljón árum voru einungis
þrjár ættkvíslir eftir og nú er aðeins
ein, þ.e. ættkvíslin Equus.
Fyrstu rannsóknir á kjarnsýru
hvatbera hjá hestum bentu til að
sameiginlegur forfaðir núlifandi
tegunda, sem nefndur hefur verið E.
simplicidens, hefði verið uppi fyrir
um 3,6 milljón árum og bar þeim
rannsóknum vel saman við fyrri
steingervingafundi.2 Samkvæmt
nýrri hvatberarannsóknum er þessi
sameiginlegi forfaðir þó mun yngri,
eða 2,3 milljón ára gamall.3
í um 10 milljón ár var forvera
núlifandi Eqwws-tegunda einungis
að finna í N- og Mið-Ameríku. Á
plíósen, fyrir um 2-3 milljón árum,
færðu þeir sig hins vegar aftur yfir til
gamla heimsins og voru hestar því
bæði í gamla og nýja heiminum um
2 milljón ára skeið.1 Örlög allra
Equus-tegundanna í Ameríku urðu
hins vegar þau að deyja út í lok
ísaldar, fyrir um 10 þúsund árum.
Ein af síðustu ættkvíslunum sem
dóu út í Ameríku var Hippidion, en
tegundir þeirrar ættkvíslar lifðu í
Suður-Ameríku á síðustu ísöld
(pleistósen), frá því fyrir 2 milljón
árum þar til fyrir um 10 þúsund
árum5 (2. mynd). Hippidion-tegundir
höfðu stutta og svera framfætur með
einni tá og mikið „kónganef" eða
flipa sem talið er að þeir hafi notað
til að grípa í einstök laufblöð trjáa og
runna. Olíkt núlifandi hestum, sem
velja sér nær eingöngu grös til
beitar, virðast þessar tegundir hafa
valið sér mun meira af laufblöðum
trjáa og runna, þ.e. verið „runna- eða
kvistætur" (browser) eins og geitur í
dag.5 Hippidion-tegundirnar voru
trúlega síðustu hestamir sem völdu
sér frekar laufblöð en grös til beitar,
en allar Equus-tegundirnar teljast
grasbítar.
En það var ekki einungis Hippi-
dion-ættkvíslin sem dó út í lok ís-
aldar (pleistósen). Á þessu tímabili
urðu fjölmargar tegundir, ættir og
ættkvíslir aldauða og er þetta tímabil
eitt af hinum stóru útdauðatíma-
bilum jarðsögunnar. Loftslagsbreyt-
ingum í lok ísaldar er almennt kennt
um þennan mikla útdauða. Hins
vegar hafa verið leiddar að því líkur
að ofveiði mannsins, sem fjölgaði
mjög á þessu tímabili, hafi ekki síður
átt stóran þátt í útdauða hestanna í
Ameríku og verulegri fækkun teg-
undanna sem voru í Evrópu og Asíu
(3. mynd).6'7,8,9í lok ísaldar er talið að
a.m.k. 27 tegundir hafi verið til í
hestaættkvíslinni Equus, bæði í
gamla og nýja heiminum.3 Eins og
fyrr segir dóu allar tegundimar út í
nýja heiminum og einungis sjö
tegundir ættkvíslarinnar lifðu af í
Evrópu, Asíu og Afríku. Það em þær
tegundir hesta, asna og sebrahesta
sem við þekkjum í dag.1
NÚLIFANDI TEGUNDIR
Nokkuð hefur verið á reiki hvemig
flokka ætti tegundirnar, en
rannsóknir á kjarnsýru hvatbera
tegundanna hafa skýrt mjög skyld-
leika og tengsl þeirra. Nú em flestir
sammála um að tegundimar séu sjö,
sex villtar auk hins ræktaða og
tamda hests (Equus caballus). Þessar
sex tegundir eru hinn eiginlegi
villihestur, þ.e. takhi-hesturinn (E.
przewalskii), þrjár tegundir sebra-
hesta (E. greyvi, E. zebra og E. bur-
chelli) og tvær asnategundir, afríku-
asnirtn (E. africanus) og asíuasninn
(E. hemionus)} Tíbetasninn (E. kiang)
er af sumum enn talinn sérstök teg-
und3,4 og telst þá áttunda tegundin,
en aðrir telja hann til asíuasnans.
Tamdi hesturinn er skyldastur
takhi-hestinum og tamdi asninn er
kominn af afríska asnanum. Af
sebrahestum eru ekki til nein tamin
afbrigði.
Samkvæmt Jansen o.fl.10 greindist
fjallasebrinn (E. zebra) fyrst frá
meginstofninum. Næst greindist
Ár
(milljónir) S-Ameríka Norður Ameríka Gamli heimurinn
Kvarter
Equus
Equus
10-
15-|
20.
25
30
35
40
45-
50.
55
Mílósen
Merychippus
Parahippus
Ólígósen
Miohippus
| Grasbítar
| | Runnaætur
Eósen
r
Eohippus
Jarðsögutímabil
2. mynd. Helstu ættkvíslir innan hestaættarinnar frá upphafi til okkar daga. - The evo-
lutionary tree of the family ofEquidae. Aðlagað og birt með leyfi B.J. MacFadden.