Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 47

Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Hreinn Óskarsson og Gunnar Tómasson Tilraun til að nýta SNJÓTITTLINGA VIÐ DREIFINGU Á REYNIVIÐARFRÆI Reyniviður (Sorbus aucoparia) er trjátegund sem vaxið hefur hér á landi frá ísöld að talið er. Tegundin sáir sér með hjálp fugla sem éta ber hennar.1 Eins og fram kom í fjölmiðlum veturinn 2004-2005 hafa snjótittlingar verið fóðraðir á reyniberjum með það að markmiði að dreifa reynifræi á illa grónu landi.2 Eru reyniber þá hnoðuð saman við hrossatólg og þau lögð á ógróin svæði. Fæðuval snjótittlinga er breyti- legt eftir árstíðum. Á veturna eru fræ, t.d. mel- og grasfræ, algengasta fæðan auk matargjafa frá mannfólkinu. I fóarni snjótittlinga, eins og flestra fugla sem lifa á tor- meltri fæðu, eru smásteinar, sýrur og ensím sem melta fræ. Steinamir eru nauðsynlegir fræætum því þær þurfa að mylja fræið til að ná orku úr því. Sem dæmi má nefna að snjó- tittlingar ná auðveldlega að melta kurlaðan maís, sem er margfalt stærra fræ en hin örsmáu reynifræ. Sturla Friðriksson3 fann fræ og fræleifar í fóami snjótittlinga sem hann veiddi í Surtsey vorið 1967. Þar var helst að finna fræ með þykka fræskel sem fuglarnir höfðu borið frá nálægum löndum, og spíraði hluti þeirra.3 Sá galli er hins vegar á athugun Sturlu að hann athugaði ekki hvort fræ væri að finna í driti fuglanna. Til að komast að því hvort útburður á fræi fyrir snjótittlinga sé vænleg aðferð í skógrækt eða landgræðslu var gerð fóðrunar- tilraun á snjótittlingum sem sagt er frá hér. Leyfi fyrir athuguninni var fengið frá Umhverfisráðuneytinu eftir um- sögn frá Náttúrufræðistofnun ís- lands, en leyfi þarf til að handsama fugla á íslandi hvort sem það er gerð í rannsóknaskyni eður ei. Efni og aðferðir Þartn 6. aprfl 2005, kl. 14:00, voru sex snjótittlingar veiddir í gildru í Asparlundi í Biskupstungum. Fugl- arnir voru merktir með álmerkjum frá Náttúrufræðistofnun íslands og vigtaðir. Fuglamir voru strax settir í rúmgott búr (mál: 35x60x50cm) með dagblöðum í botni og vatni. Búrið var haft í köldu gróðurhúsi. Sam- tímis voru settar inn mörkökur, önnur með hreinsuðu reynifræi (kakan var 20 g) og hin með mörðum reyniberjum (48 g). Fugl- arnir sáust aldrei drekka en böðuðu sig oft og því var skipt reglulega um vatn. Framvinda Samdægurs kl. 18:15 höfðu fuglamir kroppað lítilsháttar í báðar kökum- ar. Kl. 07:00 þann 7. aprfl 2005 vom kökumar teknar undan og skipt um pappír í búrinu. Þá var búið að kroppa öll sjáanleg fræ úr smærri kökunni (hún hafði þá lést um 4 g) en stærri kakan var sundurtætt (uppsópið af henni var 40 g). Dritsöfnun varaði allan tímann en fuglamir voru án fæðu milli 07:00 og 12:00 þann 7. aprfl til að trufla ekki dritsöfnun. Kl. 12:00 var sett maís- korn inn til fuglanna sem þeir átu stöðugt í um 10 mínútur. Kl. 12:30 var fuglunum sleppt eftir að þeir höfðu verið vigtaðir (sjá töflu 1 um samanburð á þyngd við veiði og sleppingu). Fuglunum var öllum sleppt samtímis og ekkert virtist þá ama að þeim. Til að kanna hvort leifar heillegra fræja fyndust í dritinu var því smurt í þunnu lagi á hvítt blað og það síðan athugað náið undir stækkunargleri. Ekki gerist þörf á frekari stækkun til að finna jafn stórgerð fræ eða fræhluta og koma af reyni. Niðurstaða Við skoðun á driti því sem safnaðist meðan fuglamir vom í haldi kom í Náttúrufræðingurinn 73 (3-4), bls. 117-118, 2005 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.