Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 49

Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 49
Náttúrufræðingurinn Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags NáTTÚRUFARSANNÁLL 2004 Ártti Hjartarson og Droplaug Ólafsdóttir tóku saman Árið 2004 var allviðburðaríkt á hinu náttúrufarslega sviði, tíðarfar gott en óvenjulegt um margt, Grímsvatnagos og Skeiðarárhlaup settu svip á árið. Viðbrögð lífríkisins við hlýindakaflanum, sem nú hefur staðið í nokkur ár, eru auðsæ bæði í jurta- og dýraríki, ekki síst hvað varðar heimsóknir flækingsfugla og ferðir fiska og hvala. Árferði Samkvæmt veðurfarsupplýsingum Trausta Jónssonar á Veðurstofu íslands var árið 2004 hlýtt um allt land og víða voru skráð ný hitamet. Aldamótahlýindin standa enn. í flestum landshlutum var árið hið fimmta til áttunda hlýjasta frá upphafi mælinga. Það var þó um hálfu stigi kaldara en árið 2003, sem reyndar er í hópi þriggja hlýjustu áranna. Að slepptu árinu 2003 þarf að fara fjóra til sex áratugi aftur í tímarrn til að finna jafnhlý ár eða hlýrri. Árabilið 2000-2004 er hlýjasta 5 ára tímabil í Reykjavík sem vitað er um frá upphafi samfelldra mælinga. Meðal- hiti síðustu 5 ára á Akureyri er einnig hærri nú en vitað er um áður. Meðalhiti í Reykjavík var 5,6°C eða 1,3°C yfir meðallagi, hálfu stigi lægri en árið 2003, en álíka og 1960 og 1964. í Stykkishólmi var meðalhiti ársins 4,9°C eða 1,4°C yfir meðallagi. Á Akureyri var meðalhitinn 4,8°C og er það 1,5°C yfir meðallagi. Aðeins er vitað um þrjú marktækt hlýrri ár þar, 1933, 1939 og 2003. í annarri viku ágúst gerði sannkallaða hitabylgju sem gætti mest um sunnan- og vestanvert landið og inn til landsins í öðrum landshlutum. Hún var einkum sérstæð fyrir það hversu lengi hún stóð. Hiti fór yfir 20 stig í Reykjavík fjóra daga í röð, en slíkt hefur ekki gerst síðan hitamælingar hófust. Gömul hitamet féllu víða, m.a. 113 ára gamalt met í Reykjavík, þegar hitinn komst í 24,8 stig þann 11. ágúst. Á Egilsstaðaflugvelli mældist hámarkshiti 29,2 stig þennan sama dag, sem er nýtt ágústmet fyrir landið. Ágústmánuðir áranna 2003 og 2004 eru þeir hlýjustu í Reykjavík síðan samfelldar mælingar hófust þar um 1870. Sólríkt var líka á landinu og í Reykjavík hefur ekki mælst jafnmikið sólskin í ágúst síðan 1960. Á Akureyri hefur aldrei mælst jafnmikið sólskin í ágúst. Til hamingju með Öskju! Á vordögum 2004 var vígt nýtt kennsluhúsnæði Háskóla íslands: Askja - náttúrufræðahús Háskóla íslands, var það nefnt og hýsir Hffræði, jarðfræði, jarðeðlisfræði, landfræði og ferðamálafræði, Jarðeðlisfræðistofu, Jarð- og landfræðistofu, Ltffræðistofnun og Norrænu eldfjallastöðina. Við tilkomu Öskju hafa starfsaðstæður í jarð- og lífvísindum gerbreyst með því að sameinaðar hafa verið undir eitt þak, ólíkar en um margt skyldar greinar, tækifæri skapast til þverfaglegra rannsókna og samvinnu milli fræðasviða jafnframt því sem betri nýting á aðstöðu og tækjakosti leiðir til hagræðingar. 119
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.