Náttúrufræðingurinn - 2005, Blaðsíða 51
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Skjálftavirkni á þessum slóðum er óvanaleg.
Þann 26. desember varð stórskjálfti, sem mældist
8,9 á Richterkvarða, við norðvesturströnd eyjunnar
Súmötru í Indónesíu. Jarðskjálftinn kom af stað
gríðarlegum hafnarbylgjum (tsunami) sem gengu á
land við strendur Indlandshafs og ollu feikilegu
manntjóni og skemmdum. Talið er að um 300.000
manns hafi farist, langflestir af völdum
flóðbylgjunnar. Jarðskjálftinn sást greinilega á öllum
jarðskjálftamælum á íslandi.
Skriður
Mikið úrfelli varð á Norðurlandi dagana 20.-21.
september. Mest rigndi aðfaranótt 20. september en
þá mældust 81,5 mm á Kálfsárkoti í Ólafsfirði. Lækir
og tjarnir bólgnuðu og líktust helst stórfljótum og
stöðuvötnum, aurskriður runnu niður fjallshlíðar og
vatn flaut inn í kjallara húsa á Ólafsfirði og olli
skemmdum. I þessu veðri varð tjón á Múlavegi milli
Ólafsfjarðar og Dalvíkur er átta aurskriður féllu á
hann. Hús og vegir skemmdust mikið í flóðum.
Aurskriða sem féll á golfvöllinn olli tjóni á einni
braut vallarins og eyðilagði vatnsbólið fyrir
golfskálann og völlinn. Skurðir sem gerðir voru ofan
Ólafsfjarðar í kjölfar mikilla skriðufalla árið 1988
björguðu því nú að ekki varð miklu meira tjón.
Grdðurfar
Hagstætt vor og gróðrartíð hafði þau áhrif að ýmsar
tegundir jurta blómguðust fyrr en í venjulegu árferði.
Frjókornamet í Reykjavík frá árinu 2003 var slegið í
júnímánuði 2004. Þá mældust fleiri frjókorn en
nokkru sinni áður frá því reglubundnar mælingar
hófust árið 1988, eða 1086 frjó á rúmmetra.
Heildarfjöldi frjókorna á Akureyri í júní var svipaður
og árið 2003 en bæði árin reyndist frjómagn yfir
meðaltali frá því mælingar hófust 1998.
Ástand sjávar
Sjór á Islandsmiðum var almennt nokkru hlýrri og
saltari en í meðalári á hverjum árstíma. Hiti og selta
Þverganga Venusar 8. júní 2004, frá Reykjavík
05:19 05:39
.Pyerganga hálfnuð
08:22 11*02
.11:23
m
IV
Þverganga Venusar
Þann 8. júní bar Venus í sól frá jörðu séð. Þetta
fyrirbrigði er kallað þverganga. Þverganga
Venusar fyrir sól er sjaldgæf og varð síðast fyrir
122 árum svo enginn núlifandi maður hafði orðið
vitni að fyrirbrigðinu. Veður var hagstætt víða á
landinu og margir munu hafa fylgst með
atburðinum. Þvergangan tók um sex tíma. Venus
renndi sér inn á sólskífuna kl. 5:19 en hvarf út af
herrni kl. 11:23 samkvæmt Almanaki Háskólans.
Þetta er sjötta þvergangan sem rnenn hafa orðið
vitni að. Þær fyrri voru árin 1639, 1761,1769, 1874
og 1882. Þvergöngur Venusar voru notaðar til að
mæla fjarlægðina til sólar á sínum tíma og þá
fengu menn fyrstu nasasjón af raunverulegri stærð
sólkerfisins og vegalengdum í geimnum.
yfirborðssjávar vestur af landinu var vel yfir
meðallagi og svipað og árið 2003 þegar hæstu gildi í
30 ár mældust. Minna bar á útbreiðslu hlýsjávar fyrir
norðan landið miðað við árið á undan. Botnhiti á
íslenska landgrunninu var víðast um eða yfir
meðallagi umhverfis allt landið.
Skilyrði fyrir frumframleiðslu svifþörunga í
yfirborðssjónum voru almennt hagstæð en átumagn
var á heildina litið nokkuð undir meðallagi. Djúpt
norðaustur og austur af landinu, á fæðuslóð norsk-
íslensku síldarinnar, var hins vegar rnikið af átu.
Þjdðarblómið
Landsmönnum var gefinn kostur að taka þátt í vali á
þeirri plöntutegund sem þeir teldu helst verðuga að
bera sæmdarheitið þjóðarblóm íslands. Plöntu sem
gæti haft táknrænt gildi, þjónað sem sameiningartákn
og sem nýta mætti í kynningar- og fræðslustarfi bæði
hér á landi og á erlendum vettvangi. Val þjóðarblóms
var að frumkvæði landbúnaðarráðuneytisins en
Landvernd hafði umsjón með verkefninu. Tuttugu
tegundir voru kynntar til leiks um mitt sumar og um
haustið var efnt til skoðanakönnunar meðal
almennings. Eftir spennandi og harða keppni varð
holtasdleyin (Dryas octopetala) hlutskörpust.
Ljósm. Hörður Kristinsson
121