Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 55

Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 55
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Sigurður Björnsson 1. mynd. Vikurdyngjur á Sléttubjörgum, mest frá 1362. Ljósm./photo: Sigurður Björnsson 30. 8. 1996. GOS í ÖRÆFAJÖKLI 1362 Flestum íslendingum mun kunnugt um að árið 1362 er talið að orðið hafi mesta vikur- gos sem vitað er af hérlendis frá því land byggðist og að það kom úr Öræfajökli. Ekki er þó til nema ein samtímaheimild um það sem þá gerðist, enda eru heimildir um ná- lægan tíma fátæklegar. Má sem dæmi nefna að fundist hafa öskulög sem sanna að stórkostleg gos hafa þá orðið en hvergi er þeirra getið. Talið er að þessi heimild hafi verið skrifuð norðanlands en er þó kennd við Skálholt og nefnist Annálsbrot frá Skálholti. Hún hljóðar þannig: „Eldur uppi í þremur stöðum fyrir sunnan, og hélst það frá fardögum til hausts með svo miklum hýsnum, að eyddi allt Litlahe'rað og mikið afHorna- firði og Lónshverfi, svo eyddi 5 þing- mannáleiðir. Hér með hljóp Knappa- fellsjökull fram ísjó, þar sem var þrítugt djiíp, með grjótfalli, aur og saur, að þar urðu síðan sléttir sandar. Tók og aftvær kirkjusóknir með öllu, að Hofi og Rauða- læk. Sandurinn tók í miðjan legg á sléttu, en rak saman í skafla svo að varla sá húsin. Öskufall bar norður um land svo að sporrækt varð. Það fylgdi og þessu að vikurinn sást reka hrönnum fyrir Vestfjörðum að varla máttu skip ganga fyrir."1 Þama er örstutt lýsing á því sem gerðist, greinilega höfð eftir sjónar- votti og aðeins það sem sagt er um eftirstöðvar flóðsins getur orkað tví- mælis og verður að því vikið síðar. Sá sem sagði ritaranum frá, mun ekki hafa gert sér grein fyrir að vik- urirtn hefur þjappast saman undir fæti hestsins og hann því verið þykkari en þama kemur fram eða eins 30-40 cm og Sigurður Þórarins- son taldi. En þama er ekki getið um manntjón af völdum gossins, sem eðlilegt er að hefði verið gert, ef orðið hefði. Fleiri annálar geta um þetta gos2 en em flesúr skrifaðir ára- tugum og öldum semna og af mönn- um sem ekki munu hafa þekkt til á Suðausturlandi. Þeir mimiast ekki á vikurinn en telja að flóð hafi eytt sveitinni. Þeir vom í raun og vem að lýsa atburðum sem gerðust fáum ámm fyrir gosið í Öræfajökli 1362 og verður þeirra seinna getið. Náttúrufræðingurinn 73 (3-4), bls. 125-132, 2005 125

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.