Náttúrufræðingurinn - 2005, Síða 59
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
6. mynd. Kvísker. Kambsmýrarkambur í fjarska. Ljósm./photo: Sigurður Björnsson
líður virðist sem í Öræfasveit hafi
haldist furðu rétt sögn um atburði
sem gerðust skömmu áður en
Öræfajökull gaus, en gæti ekki hafa
geymst ef allir í sveitinni hefðu farist
í gosinu.
FÓLK KEMUR AFTUR
Fyrsta heimild um að aftur sé komið
fólk í Öræfi, er máldagi Hofskirkju
frá 1387 sem talinn er ritaður af
Mikael biskupi í Skálholti eða skrif-
urum hans. Hann hljóðar þannig:
„Klemenskirkja að Hofi í Héraði á
heimaland hálft með öllnm gögnum og
gæðum inn að Kotá, sem fellur fyrir
innan Kúabakka og sjónhending upp í
þaðgljúfitr við neðanvertfjallið sem stí á
fellur tír og upp í mitt Rótarfjall, á móts
við Sandfellsmenn. Hofá land austur að
gljúfri því sem Gljúfursá fellur úr og í
Hamarenda og síðan óslitið land út í
Ingólfshöfða. Item Ingólfshöfða allan að
tveim hlutum fráteknum fuglbergs sem
eignaður er annar kirkjunni á Eyrar-
horni, þriðji kirkjunni á Rauðalæk, Hofá
allan reka frá Salthöfðafjöru að Ingólfs-
höfða."16
Máldaginn er nokkru lengri, því
sagt er frá því sem var innan kirkju,
en hann endar þannig: „Fjórir bæir
liggja undir til tíundar."
Það er alveg ljóst að biskup hefur
talað við martn sem var kunnugur á
Hofi áður en gosið kom og vissi um
örnefni, þegar hann samdi mál-
dagann. I máldaga Hofskirkju frá
134317 er ekkert sagt um mörk Hofs-
lands svo ekki hefur biskup upplýs-
ingar sínar þaðan. Hann veit líka skil
á fjörunum og nefnir Salthöfðafjöru,
sem ekki kemur fram í rituðu máli
áður. (I Breiðármáldaga18 er getið
um fjöru fyrir Salthöfða, en ekki með
nafni). En Salthöfðafjara hefur
tilheyrt jörð nærri Salthöfða þó það
væri gleymt 1712 þegar Isleifur
sýslumaður var að skrá eyðibýli.
Ingólfshöfði hefur verið ein verð-
mætasta eign Rauðalækjarkirkju
eftir gosið, því af honum hefur
vikurinn fokið fljótt og því verið góð
beit þar, en þar sem hann var kirkju-
eign hefur biskup talið að hann
mætti færa þá eign til Hofskirkju,
eins og áður hafði verið gert með
1973.
kvikfénað Jökulfellskirkju og
Hnappavallakirkju er hann var
færður til annarra kirkna, og jafnvel
klukkur og skrúði, en hann gekk þó
ekki svo langt að færa fuglabjargið
þangað þó sumir virðast hafa haldið
það, þar sem rætt var um allan
Ingólfshöfða. En það er líka fjallað
um Ingólfshöfða í Rauðalækjar-
máldaga8 og sagt að af honum eigi
Eyrarhom tvo fimmtu, en Rauða-
lækjarkirkja eigi þrjá fimmtu og allt
fuglbergið. Það er því Ijóst að á
báðum stöðum er átt við graslendið.
Ekki kemur fram hverjir þessir
fjórir bæir voru sem lágu undir
Hofskirkju til tíundar. Hofsmáldagi
hefur verið tortryggður af fræði-
mönnum,319 að því er mér virðist
vegna þess að eignir Rauðalækjar
gengu seinna til Sandfells en þar er
ekki vitað um að prestur hafi verið
fyrr en nálægt 1500. Að vísu er
heldur ekki vitað um prest á Hofi,
sem þar mun þó hafa verið á vegum
bóndans, en Hofskirkja átti hálfa
jörðina. Og í millitíðinni náði biskup
eignarhaldi á allri jörðinni, þ.e. 1488,
en seldi hana svo 1525, svo að þessi
tortryggni virðist hafa haft við
hæpin rök að styðjast. Mikael bisk-
upi hefur því verið vandi á höndum
ef hann ætlaði að láta sumt af eign-
um Rauðalækjarkirkju verða að
einhverju gagni þegar Rauðilækur
var fallinn úr byggð.
Niðurstaðan er sú að strax árið
1387, eða 25 ámm eftir gos, hafi verið
komið fólk að Hofi og á a.m.k. fjóra
aðra ónafngreinda bæi í sveitinni.
FÍVAR VAR GOSIÐ?
Engin heimild er til um það, hvar úr
Öræfajökli gosið kom árið 1362, en
virði maður fyrir sér gott kort af
Öræfajökli kemur í ljós að slétta er
milli Hnapps og Hvannadalshnúks
og er hún um 4 km á þann veg en 2
km á hinn veginn. Undir þessari
sléttu er vitað um öskju og menn
hafa ætlað að úr henni hafi gosið
1362 komið.3 Það munu menn hafa
haldið vegna annálanna, sem telja að
vatnsflóð hafi sópað allri byggðinni
burt, en til þess hefði þurft flóð sem
ekki hefði getað myndast annars
staðar en í öskjunni. En ljóst er að á
þeim tímum sem annálamir voru
ritaðir, hafa menn haft óljósar sagnir
um gosið 1362 fyrst aðeins einn
þeirra minnist á vikurfallið.
En hvar kom þá gosið úr fjallinu?
Merki um stærsta flóð sem komið
hefur frá Öræfajökli eru milli
Svínafells og Sandfells, og áleit
Sigurður Þórarinsson3 að þau
mundu hafa verið eftir hlaup frá
1362, en því miður gaf hann sér ekki
tíma til að aldursgreina þær minjar.
129