Náttúrufræðingurinn - 2005, Qupperneq 60
Náttú rufræðingurinn
Nöfn bæja í Litlahéraði
Bær Fór í eyði Aths.
Bakki Berjahólar 1632
Breiðá (Breiðármörk) 1698 Bænhús
Eyrarhom 1362 eða fyrr títkirkja
Fagurhólsmýri í byggð Byggð á seinni
öldum Fjall (Fell) 17. öld? Hvarf í jökul
Freysnes 1362
Gröf 1362
Gröf eystri 1362
Hellir eystri Hlaðnaholt Hnappavellir 1 byggð títkirkja
Hof í byggð Alkirkja
Hofsnes f byggð
Hólar Bænhús?
Hreggás (Vindás?) Húsavík Jökulfell 1350 títkirkja
Krossholt Kvísker í byggð
Langanes Nes E.t.v. ekki bæjarnafn
Rauðilækur 1362 Alkirkja
Salthöfði (Bær) 1362
Sandfell 1947 Hálfkirkja
Sandhöfði Skaftafell f byggð
Skammstaðir Skarð E.t.v. ekki bæjarnafn
Steinsholt Svínafell í byggð (Kirkja)
Svínanes
Má líka vera að erfitt sé að ákveða
aldur þeirra, vegna þess að hlaupið
frá Öræfajökli 1727 fór um þetta
svæði.20 Ég er ekki fær um að aldurs-
greina þessar flóðmenjar en grunar
að þær séu ekki yngri en kambamir
við Kvíárjökul sem Sigurður athug-
aði og getið verður. Það er örugg
heimild fyrir því að kirkjan á Rauða-
læk stóð eftir gosið 1362 og að
kirkjustæðið var óskemmt til 1682.
En það er með öllu útilokað að
nokkuð hefði sést eftir af kirkjunni
eftir þær hamfarir sem enn sjást
minjar um á milli Svínafells og
Sandfells ef þær væru frá 1362.
Ekki er til lýsing af Öræfajökli
fyrir gosið en nafnið Hnappafells-
jökull segir dálítið og mestar líkur
munu vera til að hann sé lítið
breyttur. Aðalafrennsli jökulíss frá
sléttunni sem hylur öskjuna er
Kvíárjökull og ef eldgos hefði komið
upp innan öskjunnar, hlyti aðal-
flóðið frá því að fara niður Kví-
árjökul, og vafalaust hefði það verið
svo öflugt að það hefði jafnað út
kambana við hann. En einu merkin
sem örugglega eru eftir þetta gos,
fyrir utan vikurinn, eru merki um
flóð sem komið hefur milli Hnappa-
valla og Kvíármýrar, sem áður hefur
verið minnst á, og hefur verið allt að
fjóra og hálfan km að breidd. Nú er
það svo að kambamir sýnast ekki
mjög gamlir, því á 19. öld fyllti
jökullirtn alveg upp milli þeirra og
frá jöklinum hrapaði möl og steinar
niður eftir hlíðum þeirra og mun
það hafa villt suma sem litið hafa,
um aldur þeirra. Einn þeirra var
Sigurður Þórarinsson, sem þá hafði
aðeins litið á þá frá veginum. En
þegar hann sá í Hnappavallamál-
daga, sem talinn er vera frá 1343,8 að
kirkjan hafði átt skóg í Kví-
skerjalandi, milli Kambskarðs og
Vattarár, fannst honum sjálfsagt að
athuga kambana almennilega og
niðurstaða hans var að þeir myndu
vera um 10 þúsund ára að stofni til.
Ekki dettur mér í huga að halda
því fram að aldrei hafi komið gos úr
öskju Öræfajökuls en ég tel þó
trúlegra að það hafi ekki gerst nú í 10
þúsund ár, því að frá því mundu
kambamir segja. En það mun rétt
sem Sigurður Þórarinsson sagði mér
að í gömlum eldfjöllum væri algengt
að gos kæmu neðan efstu hæðar. Og
góðar heimildir em um að svo var
það með gosið í Öræfajökli árið 1727
og er hluti þess svæðis nú jökullaus.
En þó ekki séu heimildir um hvar
í jöklinum gosið 1362 var, má vel
vera að hægt sé að átta sig á því með
athugun. Er þá fyrst að sjá hvaðan
flóðið, sem komið hefur austan
Hnappavalla, hefur komið, en vera
má að vikurinn geti einnig borið
vitni um nálægð staðarins. Á
Sléttubjörgum má sjá að nokkuð
stórir vikursteinar hafa fallið, að því
er virðist í gosbyrjun, því ekki hef ég
séð undir þeim smágerðan vikur.
Steinar þessir hafa flestir brohrað x
allmörg stykki, en slíkir steinar
virðast hafa að mestu fallið á
takmörkuðu svæði og væri fróðlegt
að vita hvað því hefur valdið. °
130