Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 64

Náttúrufræðingurinn - 2005, Page 64
Náttúrufræðingurinn fyrri ályktanir aðalfunda HÍN frá 2. mars 2002, 24. febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27. febrúar 1999, 17. febrúar 1996, 11. febrúar 1995 og 29. febrúar 1992 um málefni Náttúruhúss (náttúruminjasafns) á landsvísu í höfuðborg Islands, Reykjavík. HÍN harmar hve tregt hefur gengið að koma þessu brýna máli heilu í höfn og hvetur hlut- aðeigandi aðila til að gera gang- skör að því að efna hið fyrsta á myndarlegan hátt hl sýningar- og kennslusafns í Reykjavík, sem styðjist við vísindasafn Náttúrufræðistofnunar Islands. Jafnframt verði eflt sýningar- og kennslusafn um náttúrufræði á Akureyri á sama grunni." 2. Vöktun vatnasviðs Þingvalla- vatns: „Aðalfundur Hins íslenska nátt- úrufræðifélags (HÍN), haldinn 1. mars 2003 í Kópavogi, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda HIN frá 2. mars 2002, 24. febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27. febr- úar 1999, 28. febrúar 1998, 1. mars 1997 og 17. febrúar 1996 um nauðsyn vöktunar á lífríki Þingvallavatns og vemdunar á vatnasviði Þingvallavatns með sérstakri áherslu á eftirfarandi atriði: Komið verði sem fyrst á skipulegri langtíma vöktun á líf- ríki Þingvallavatns. Þingvalla- svæðið og vatnasvið Þingvalla- vatns verði vernduð á viðeig- andi á viðeigandi hátt, þar sem litið sé sérstaklega til einstaks Um höfundinn Kristín Svavarsdóttir (f. 1959) hefur verið for- maður Hins íslenska náttúrufræðifélags frá 2002. Hún lauk doktors- prófi í plöntuvistfræði frá Lincoln-háskóla í Nýja-Sjálandi. Kristín er sérfræðingur i vistfræði hja Landgræðslu ríkisins. PÓSTFANG HÖFUNDAR Kristín Svavarsdóttir kristin.svavarsdottir@land.is Landgræðsla ríkisins Skúlagötu 21 IS-101 Reykjavík lífríkis Þingvallavatns, sögu- helgi Þingvalla og sjónarsviðs þeirra og stórmerkilegs náttúm- fars á vatnasviði Þingvallavatns. Unnið verði viðeigandi kynn- ingarefni um náttúmfar svæðis- ins og það gert aðgengilegt gest- um á svæðinu og almenningi öllum." 3. Friðland á hálendi Islands: „Aðalfundur Hins íslenska nátt- úmfræðifélags (HIN), haldinn 1. mars 2003 í Kópavogi, ítrekar að gefnu tilefni ályktun aðalfundar HÍN frá 28. febrúar 1998 og 1. mars 1997 og skorar á Alþingi fslendinga að stofna til friðlands á hálendi íslands með því að setja sérstaka löggjöf þar að lútandi með vemd náttúm í fyrirrúmi. í þessu sambandi vekur HÍN athygli Alþingi Islendinga á mikilvægi þess að ljúka sem fyrst vinnu við gerð náttúruvemdar- áætlunar (sbr. 65. og 66. gr. nátt- úruvemdarlaga nr. 44/1999) og vinnu í Rammaáætlun um nýt- ingu vatnsafls og jarðvarma. Hér er um að ræða undirstöðuverk- efni til stefnumótunar og ákvarð- ana um skynsamlega umgengni og vemdun íslenskrar náttúm." Fræðslufundir OG FRÆÐSLUFERÐI R Haldnir vom sex fræðslufundir á árinu. Fundimir voru haldnir síðasta mánudag mánaðarins kl. 20:30 yfir vetrartímann í stofu 101 í Lögbergi og vom fyrirlestrarnir: Janúar. Kristinn H. Skarphéðins- son: Fuglar og skógrækt. Fundar- gestir vom 66. Febrúar. Hreggviður Norðdahl: Hvalir áfjöllum. Fundargestir vom 23. Mars. Helgi Bjömsson: Framtíð Vatnajökids. Fundargestir voru 50. September. Guðmundur A. Guð- mundsson: Mörgæsir og gervi- hnettir. Fundargestir voru 38. Október. Bryndís Brandsdóttir og Guðrún Helgadóttir: Landgrunn Norðurlands. Hafsbotninn í Tjör- nesbeltinu. Fundargestir voru 30. Nóvember. Ása L. Aradóttir: Nýjungar i landgræðslu. Fundar- gestir voru 30. Alls mættu tæplega 240 manns, eða að meðaltali 40 manns, á hvert erindi. Eins og fyrri ár var löng ferð skipulögð í júlí. Fara áth á Austur- land og meðal annars skoða virkjun- arsvæðið við Kárahnjúka og gert var ráð fyrir að gista á Hótel Svartaskógi í Jökulsárhlíð. Því miður taldi stjóm- in sig tilneydda að fella ferðina niður nokkm fyrir áætlaðan brottfarardag vegna mjög dræmrar þátttöku, en innan við 10 manns höfðu skráð sig. ÚTGÁFA Aðeins eitt hefh kom út af Náttúru- fræðingnum á árinu, 4. tbl. 70. árg. Haustið 2002 var ákveðið að fara í gagngerar breyhngar á útliti hma- ritsins en umræður höfðu verið um það lengi vegna þeirra takmarkana sem stærð blaðsins seth. Talið var að breyhnga væri þörf ekki síst vegna aukinna krafna um birhngu mynda og grafa. Finnur Malmquist, grafísk- ur hönnuður og félagsmaður HÍN, hannaði nýtt útlit tímaritsins svo og nýja forsíðu í samráði við stjórn félagsins og ritstjóra Náttúrufræð- ingsins. Vegna þessarar vinnu tafð- ist útgáfa fyrstu hefta 71. árgangs. Hátíðardagskrá TIL HEIÐURS Steindóri Steindórssyni FRÁ HLÖÐUM HÍN tók þátt í hátíðardagskrá til heiðurs Steindóri Steindórssyni frá Hlöðum í hlefni af því að 100 ár voru liðin frá fæðingu hans 12. ágúst 2002. Vísindaráðstefna um grasafræði var haldin í Menntaskólanum á Akur- eyri og síðan var opnuð sýning í minningu Steindórs á Amtsbóka- safninu. Steindór var heiðursfélagi HIN. Undirbúningsnefnd var skip- uð Bjarna Guðleifssyni, Steindóri Gunnarssyni, Tryggva Gíslasyni og Þóri Haraldssyni. Krishn Svavars- dóthr formaður og Kristinn Alberts- son gjaldkeri voru fulltrúar félagsins við háhðardagskrána. 134

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.