Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 15
2. mynd. Myndin sýnir hvar jökulrákir voru mœldar og stefnur þeirra. Rákatákn án haks
sýnir yngstu skriðstefnuna. Eldri skriðstefnan er táknuð með einu haki en elsta stefnan
með tveimur hökum. - Glacial striae in the Reykjavík region. Plain striae marks show the
youngest direction. Marks with one bar indicate the older direction. Marks with two bars
show the oldest direction.
Yngra kerfið er algengara og er skýrast
austan og suðaustan í klapparholtum og
hæðum, þ.e. áveðurs þar sem landslagið
snýr á móti skriðstefnu jökulsins. Eldra
kerfið finnst helst vestan og norðvestan í
klapparholtum, þ.e. í skjóli fyrir jöklinum sem
mótaði yngra kerfið. Dærni um þetta eru á
vesturströnd Gróttu og á Suðurnesi. Jökul-
rákir elsta kerfisins eru fágætar og hafa
einungis fundist á þremur stöðum, þ.e. í
Fossvogi eins og fyrr er nefnt en einnig á
Alftanesi og í Viðey.
Meðalstefnur hvers kerfis eru eftirfarandi:
Yngrakerfi 330°
Eldra kerfi 300°
Elsta keifi 280°
Skriðstefnur innan hvers kerfis eru lítið
eitt breytiJegar frá einum stað til annars og
geta vikið 10° frá meðalstefnunni.
■ SAGA ÍSALDARLOKA
Jökulrákirnar segja fróðlega sögu um fs-
aldarlok á Reykjavíkursvæði. Elstu rákirn-
ar sýna að jökull með vestlæga stefnu
hefur skriðið í átt til sjávar frá Hengli.
Líklegt er að þessi jökull hafi náð langt út í
Faxaflóa. Þegar nálgaðist alleröd-tíma-
bilið, sem hófst fyrir 11.800 árum, höfðu
jöklar dregist mjög saman og jökulmiðjan
flust til suðurs. Þá lá hún einhvers staðar
yfir Vífilsfelli eða Þrengslum en skrið-
jökullinn hné til vestnorðvesturs. Brún
þessa jökuls hopaði síðan inn til lands í
hlýindum á alleröd og Reykjavíkursvæðið
losnaði undan ísi. Á yngra-dryas kólnaði
mjög og jöklar gengu fram á ný og teygðu
sig til sjávar. Jökulmiðjan var sunnar en
fyrr, líklega yfir Grindaskörðum, en
jökultungan yfir Reykjavík seig til
norðnorðvesturs. Tilfærsla jökulmiðjunn-
157