Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1999, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1999, Síða 20
tegund hafí áður verið greind hér á landi. Reyndar geta Armitage og McMillan (1963) þess að fundist hafí snigill í alinennings- garði í Hafnarfirði en hann hafi verið of ungur til að hægt væri að greina hann með vissu. Þeir töldu hann vera af tegundinni Limcix maximus eða L. cinereoniger, þó fremurþeirri síðarnefndu. ■ ÚTBREIÐSLA Grásnigillinn finnst víða um heim. Hann er evrópskur að uppruna en hefur borist til N- Ameríku, S-Afríku, Astralíu og Nýja- Sjálands. Kerney og Cameron (1979) segja hann sjaldgæfan norðan við 60. breiddar- gráðu. f Noregi finnst hann við vestur- ströndina norður að Þrándheimsfirði en hefur síðastliðinn áratug verið að breiðast út og finnst nú á stöku stað allt norður í Tromsp, sem er á 69. breiddargráðu. Snigillinn berst m.a. með plöntum og í Noregi veldur hann skemmdum á blóm- jurtum og grænmeti í görðum þótt fjöldinn sé sjaldan mikill. Reyndar er snigillinn oft fremur talinn lifa á sveppagróðri og rotnandi plöntu- og dýraleifum í skógum, runnum og sorphaugum, en einnig í görðum, rökum kjöllurum og útihúsum. Ekki er líklegt að grásnigillinn verði plága á gróðri hér í líkingu við brekkusnigilinn og skylda snigla (Deroceras agreste / D. reticulatum) sem eru mjög útbreiddir hér. I Danmörku, Noregi og Svíþjóð er spænski skógarsnigillinn (Arion lusitanicus Mabille) hins vegar nýleg viðbót við sniglafánuna og veldur hann garðeigendum verulegum vandræðum. Sá snigill er upprunninn á Spáni, í Portúgal og S-Frakklandi en hefur á síðustu þremur áratugum breiðst út norður ei'tir Evrópu. Hann fannst fyrst í Noregi 1988 og hefur m.a. fundist þar nálægt Björgvin. Fullvaxinn getur hann orðið allt að 15 cm langur, aðeins minni en svartsnigillinn (Arion ater) og rauði skógarsnigillinn (A. rufus). Spænski skógarsnigillinn er brúnrauður en liturinn getur þó verið breytilegur. Óvíst er hvort hann getur þrifist hér á landi. Einnig er óvíst hvort grásnigillinn á eftir að verða hér landlægur, en annar snigill sömu tegundar fannst á svipuðum slóðum sumarið 1998. ■ HEIMILDIR Armitage, J. & N.F. McMillan 1963. Icelandic land and freshwater Mollusca. J. of Conchology 25 (6). 242-244. Kerney, M.P. & R.A.D. Cameron 1979. A field guide to the land snails of Britain and North- west Europe. London 288 bls. Quick, H.E. 1960. British slugs (Pulmonata: Testacellidae, Arionidae, Limacidae). Bulletin of the British Museum (Natural History) 6 (3). 103-226. Winge, K. 1993. Limax maximus in Spr- Trpndelag and M0re og Romsdal. Fauna 46. 106-109. Winge, K. & W. Vader 1995. Northerly records of the slug Limax maximus in Norway. Fauna 48. 34-35. PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR Sigurgeir Ólafsson Rannsóknastofnun landbúnaðarins Keldnaholti v/Vesturlandsveg 112 Reykjavík siggeir@rala.is 162
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.