Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 23
■ættkvíslin Innan ættkvíslarinnar Scinguisorba L., sem telst til rósaættarinnar Rosaceae, eru tæpar 30 tegundir (Dahlgren 1975) og vaxa þær um mestallt norðurhvel jarðar. Þetta eru fjölærar jurtir með gildvaxinn jarðstöngul. Blöðin sem vaxa út frá jarðstönglinum eru stilklöng en blómstöngulblöðin stilkstyttri. Blöðin eru fjaðurskipt, smáblöðin stilkuð, aflöng eða hjartalaga. Blómskipunin er aflangur, axlaga kollur á stöngulendanum. Blómin eru nær legglaus með smá, hreisturkennd stoð- og forblöð. Blómið er hvorki með bikar- né krónublöð en himnukenndur blómbotninn myndar hjúp utan um frævuna og skiptist síðan í fjóra sepa sem líkjast blómhlíf (í ýmsum flórum eru blómbotnsflipamir kallað- ir bikarblöð, sepals). Frævan er ein með löngum endastæðum stíl og stóru kögruðu fræni (Nordborg 1966). Á þeim tegundum sem hér verður fjallað um eru blómin tví- kynja, stfllinn einn og fræflarnir 2-4. ■ ÍSLENSKAR NAFNGIFTIR íslenska nafnið, blóðkollur, kemur fyrst tyrir 1 íyrstu útgáfu Flóru íslands (Stefán Stefánsson 1901) og telur Steindór Stein- dórsson (1978) líklegt að Stefán Stefánsson hafi búið nafnið til. Áður hafði birst á prenti nafnið „blóðdrekkur" (Magnús Stephensen 1820 og Oddur Hjaltalín 1830) og er það bein þýðing á ættkvíslarnafninu, sanguis = blóð og sorbere = drekka í sig. Bæði þessi ís- lensku nöfn voru notuð jöfnum höndurn á fyrri hluta aldarinnar en nafn Stefáns er nær eingöngu notað núorðið. Nöfn þeirra teg- unda ættkvíslarinnar sem ræktaðar eru hér í görðum draga dám af því og eru mynduð þannig að mismunandi fyrri hluta er skeytt framan við síðari liðinn, sem er kollur, t.d. rósakollur, kanadakollur o.s.frv. I Grasagarði Reykjavíkur var Sangui- sorba alpina sáð 1960 og mun fræið hafa komið frá Kaupmannahöfn. Óx hann þar í garðinumþartil 1985 aðhann varfjarlægður. I plöntulistafrágrasagarðinum 1963 erhans getið og þar nefndur „fjallablóðkollur". Ekki tel ég heppilegt að hafa orðið blóðkollur sem liluta af íslenska nafninu - það hefur þegar valdið nægum ruglingi. Gunnlaugur Ingólfs- son, cand. mag. hjá Orðabók Háskólans, hefur stungið upp á að nefna hann „höskoll“. Er það fomt íslenskt orð um gráhærðan mann, eða hærukoll, og fer vel á því að endurlífga þetta orð, enda felst í því skírskotun bæði til blaðlitarins, sem er fölgrágrænn, og blóin- kollsins, en þegar plantan er í fullum blóma ber mest á fræflunum og er hann þá grámósku- legur á að líta. Því er lagt til að tegundin verði hér eftir nefnd höskollur. ■ AÐGREINING TEGUNDANNA Eins og þegar hefur verið minnst á hefur til þessa ekki verið gerður greinarmunur á þessum tegundum í söfnum eða rituðum heimildum hér á landi. Þó eru þær mjög ólíkar og auðvelt að greina þær að, hvort heldur er á vaxtarstaðnum eða af þurrkuðum ein- tökum, og nægja blöðin ein og sér til þess þótt plönturnar hafi ekki blómgast. Blóðkollurinn vex í óhreyfðu gras- eða blómlendi. Plönturnar standa vel aðgreindar og eru aldrei mjög umfangsmiklar. Hös- kollurinn vex við ræktað land eða í röskuðu landi og oft í stórum, samfelldum breiðum sem geta orðið meira en 100 fermetrar að flatarmáli. Höskollurinn er mjög áberandi því blöðin eru stór og sérkennilega fölgrágræn á litinn. Blöð blóðkollsins eru smærri, dökk- græn, og skera sig ekki mikið úr nærliggjandi gróðri í lit. Auðvelt er að greina tegundirnar sundur á smáblöðunum. Skal þá skoða smáblöðin á blöðum sem vaxa út frá jarð- stönglunum en ekki blöðurn sem standa á blómstilkum og athuga vel þroskuð smáblöð ofan við mitt blað. Smáblöð blóðkollsins eru á tiltölulega löngum stilk, oftast4—10 min, og blaðkan er hjartalaga (cordatus). Smáblöð höskollsins eru stilkstutt, oftast 1—4 mm, og blaðkan gengur nærri þvert út frá smáblaðs- stilknum (truncatus), og það sem einkennir þessa tegund líka er að blaðkan gengur ntun lengra niður á stilkinn þeim megin sem snýr að blaðfætinum (1. mynd). 165
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.