Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 29
er ljóst að höskollur hefur lengi verið ræktaður hér á landi og snemma farið að berast út fyrir garða (4. mynd). ■ HUGLEIÐINGAR Hvenær barst höskollurinn hingað til lands og hvernig stendur á því að hann dreifðist svona víða? Eins og fram hefur komið sáði Schierbeck landlæknir til hans nokkru fyrir 1890; hann getur ekki um hann í skýrslu sinni frá 1886 en samkvæmt skýrslu frá 1890 er hann kominn vel á legg og hljóta plönturnar þá að hafa verið orðnar a.m.k. 2ja til 3ja ára. Schierbeck beitti sér mjög fyrir framförum í garðrækt og var einn helsti frumkvöðull að stofnun Garðyrkjufélags Islands. Sem landlæknir vann hann ötullega að bættu heilsufari landsmanna og hvatti óspart til ræktunar og neyslu grænmetis. 1 þeim tilgangi sendi hann fræ og plöntur víðs vegar úl um landið. Er ekki ólíklegt að hann hafi einnig látið fylgja með auðræktaðar blómplöntur og örvað fólk þannig lil að prýða kringum híbýli sín. Það er augsýnilegt að á mörgum fundarstöðunum hefur hös- kollurinn vaxið mjög lengi og ekki ólíklegt að hann hafi borist þangað á seinasta áratug 19. aldar. Einar Helgason garðyrkjumaður, sem rak gróðrarstöð Búnaðarfélagsins í Reykjavík, dreifði einnig fræi og garðplöntum víðs vegar um landið, en hann minnist ekki á ættkvíslina Sanguisorba, hvorki í bók sinni Björkum (1914), sem er leiðarvísir í trjárækt og blómarækt, né í skrá sem hann birti 1930 yfir útlendar blómjurtir sem hann hefur ræktað. Það hversu mikið vex af höskolli við Nesstofu leiðir hugann að því að þar var landlæknissetur frá 1760 og gegndu land- læknar einnig lyfsalastörfum fyrst í stað, en með konungsúrskurði 1772 var fenginn sérstakur lyfsali að Nesi og voru þar starf- andi lyfsalar þangað til lyfjaverslunin var flutt til Reykjavíkur 1833. Líklegt er að einhverjar lækningajurtir hafi verið ræktaðar þar við bæinn. Nú var það að vísu blóð- kollurinn sem var þekkl lækningajurt, en vera má að sömu virku efnin séu í rótum höskollsins og það er ólíkt auðveldara að fjölga honum og rækta en blóðkollinn. En þá er hins að gæta að höskollinum er fyrst lýst af grasafræðingnum Bunge í Flóru Altaica 1829 (Komarov 1941), eða rétt í þann mund sem lyfjaverslunin fluttist til Reykjavíkur og ólfklegt að fræ eða plöntur af honum hafi getað borist til landsins svo snemma. Schierbeck landlæknir fékk megnið af því fræi sem hann sáði í tilraunaskyni frá prófessor Schúbbeler í Osló, sem var mikill forvígismaður garðyrkju í Noregi, en ég hef hvergi séð höskolls getið í þeim norsku ritum um grasafræði eða garðyrkju sem ég hef haft aðgang að. í uppsláttarritinu Dic- tionary of Gardening (Huxley 1992), sem er yfirgripsmesta verk um þær garðplöntur sem ræktaðar eru á Bretlandseyjum, er fjallað um nokkrar tegundir ættkvíslarinnar Sangui- sorba en höskolls er ekki getið. Ekki er heldur minnst á hann í Garðaflóru Evrópu (Cullen 1995) svo að ólíklegt er að hann fyrirfinnist í einkagörðum, nema ef til vill hjá söfnurum. í alþýðlegri myndskreyttri bók um fjölærar garðplöntur, sem er nýlega komin út í Englandi (Phillips & Rix 1994), er þó mynd og lýsing á höskolli. Ekki kemur fram hvort eitthvað sé um það að hann sé ræktaður í görðum þar í landi eða hvort hann sé einungis ræktaður í grasagörðum, en þangað sækja höfundarnir töluvert af myndefni sínu. ■ LAKKARORÐ Að lokum við ég þakka öllum þeim sem veitt hafa mér upplýsingar og aðstoðað við þessa samantekt. Ber þar sérstaklega að nefna fyrrverandi ábúendur að Gröl í Breiðuvík, hjónin Hallstein Haraldsson og Jenny Guðjónsdóttur, sem aðstoðuðu mig og veittu mikilsverðar upplýsingar urn útbreiðslu blóðkolls á Snæfellsnesi. Starfs- fólk Náttúrufræðistofnunaf íslands var ætíð boðið og búið að greiða götu mína. Grasa- fræðingarnir Bergþór Jóhannsson, Dóra Jakobsdóttir, Eyþór Einarsson og Hörður Kristinsson lásu yfir handrit og bentu á 171
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.