Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 40
ÁTHYGLISVERÐ SKORDÝR: Ertuygla Alls er51 tegund l'iðrilda talin lifa villt í náttúru landsins. Einnig eru nokkrar tegundir í híbýlum manna sem ekki geta þraukað úti í náttúrunni. í þessum pistlum um athyglis- verð skordýr hefur áður verið fjallað um fiðrildi sem borist hafa hingað til lands erlendis frá, bæði af sjálfsdáðum og af manna völdum. Mörg íslensku fiðrildanna eru lítil og óásjáleg, en yglurnar eru undantekning frá því. Þær eru sumar hverjar allstórar; sú stærsta hefur allt að 3 cm langan búk og 6 cm vænghaf. Yglurnar eru áberandi búkmiklar, bústnar og loðnar. Nokkrar yglutegundir berast til landsins erlendis frá. Um fáeinar tegundir er ekki vitað með vissu hvort þær séu innlendar eða komnar erlendis frá. Fullvíst er talið að a.m.k. 13 tegundir lifi hér að staðaldri. Ertuygla Melanchra pisi (Linnaeus, 1758) er ein innlendu tegundanna. Hún er meðal- stór ygla, með um 3,5 cm vænghaf, mjög breytileg á lit, en oftast auðþekkt á hvítum díl á aftanverðum framvæng, nálægt væng- enda. Ertuygla er útbreidd um landið sunnanvert og hefur auk þess fundist norðanlands á Akureyri. Hún ilýgur fyrri hluta sumars, frá því snemma í júní og fram í júlí. Töluverð áraskipti eru af tegundinni. Sum ár sést hún fljúga í nokkrum mæli á kyrrum júníkvöldum, en stundum verður Erling Ólafsson (f. 1949) lauk B.S.-prófi í líffræði frá Háskóla Islands 1972 og doktorsprófi í skordýrafræði frá Háskólanum í Lundi 1991. Erling hefur starfað við dýrafræðirannsóknir hjá Náttúrufræðistofnun Islands frá 1978. ERLING ÓLAFSSON hennar lítið sem ekkert vart. Sambærilegar stofnsveiflur eiga sér einnig stað hjá mörgum öðrum tegundum fiðrilda. Hvað veldur þessum sveiflum er oftast óljóst. Lirfa ertuyglunnar er auðþekkt. Hún er dæmigerður grasmaðkur í vexti, en sker sig úr skyldum tegundum á áberandi lit. Hún er oftast dökk með fjórum ljósum, nokkuð breiðum röndum langsum eftir búknum, frá haus og aftur úr. Lirfurnar eru átvögl eins og aðrir grasmaðkar, óvægnar við gróðurinn og hafa fjölbreytt fæðuval. Þær hafa þó sérstakt dálæti á plöntutegundum af ertublómaætt (Leguminosae). Ein slík tegund er alaska- lúpína. Eins og flestum er kunnugt virðist fátt til að hernja útbreiðslu þeirrar umdeildu plöntu. Ertuyglan á það stundum til að leggjast þungt á lúpínuna, en ekki fyrr en síðsumars, þegar hún hefur náð að tryggja fræþroska. Ertuygla Melanchra pisi (Linnaeus) er breytilegá lit. Hér eru framvængirnir áber- andi tvískiptir, Ijósir nœst bolnum (fremst í hvíld) en dekkri utar. Ef grannt er skoðað má sjá einkenni tegundarinnar, þ.e. hvítan díl aftast á vinstri vœng, sem hér skarast yfir þann hœgri. Ljósm. Erling Olafsson. 182 Náttúrufræðingurinn 68 (3-4), bls. 174, 1999.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.