Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1999, Side 44

Náttúrufræðingurinn - 1999, Side 44
3. mynd. Erasmus Darwin, koparstunga Houghtons eftir málverki Rawlingtons. (Radio Times Hulton Picture Library.) félagsmál, sum í ljóðum. Hann kom víða við, allt frá lofgerð um vísindaafrek Linnés (77/e Botanic Garden, ,,Grasgarðurinn“) að tillög- um um menntun kvenna í heimavistarskólum (A Plan for the Conduct of Female Educa- tion in Boarding Schools). Arin 1794 og 1796 sendi Erasmus Darwin frá sér í tveimur bindum (í óbundnu máli) ritið Zoonomia or the Laws of Organic Life („Lögmál lifandi náttúru“). Þetta var að uppistöðu læknisfræðirit en í því birti höf- undur þróunarkenningu sent um margt líkist þeirri kenningu sem Lamarck setti fram 1809 og brátt verður vikið að. Eins og Lamarck taldi Erasmus að tegundirnar mótuðust með því að aðlagast umhverfinu. Kjarninn í þróunarkenningu hans er sagður í Zoo- nomia með þessum orðum (í þýðingu Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum): Vér veltum fyrir oss í fyrsta lagi þeim miklu breytingum, sem náttúran veldur á dýrunum eftir að þau fæðast, svo sem hið skrautvængjaða fiðrildi, er verður til úr skríðandi tólffótungi, eða fullvaxinn frosk, er andar með lungum úr lirfu, sem lifir f vatni, og hinn kvenlega dreng, sem vex upp og verður að skeggjuðum manni. í öðru lagi þeim margvíslegu breytingum margra dýra, sem fram koma við ræktun þeirra eða af hendingu. Lítum t.d. á hestana, sem vér höfum tamið í misjöfnum tilgangi allt eftir styrkleika þeirra og flýti, til áburðar eða kappreiða, eða þá hundana, sem menn hafa ræktað í næsta ólíku skyni, t.d. bolabítana vegna afls þeirra og hugrekkis, fuglahundana (spaniels) vegna þefvísi þeirra, gráhundana vegna fráleika þeirra, og enn aðrir eru svo ræktaðir af því, að þeir synda svo vel, eða geta dregið sleða í snjó, eða þá hina kafloðnu, norrænu hunda. Til viðbótar þessu er svo öll tilbreytnin í lil og vaxtarlagi, sem fram kemur á hinum smærri dýrum og vér höfum daglega fyrir augum, þegar farið er að rækta þau, svo sem kanínur og dúl'ur. Þá má ekki gleyma áhrifum loftslags og árstíðaskipta. Þannig eru sauðkindur stríhærðar í heitum löndum en ullaðar f köldum, og í norrænum löndum, sem eru snævi þakin tímum sarnan verða rjúpur og hérar hvít á vetrum. 1 þriðja lagi má telja breytingar þær, er fram koma á dýrunum fyrir fæðingu, svo að þau líkjast að lit og skapnaði foreldrunum, sem tekið hafa breytingu við ræktun eða af tilviljun, en þær breytingar haldast hjá afkvæmunum. í fjórða lagi þegar vér hugleiðum, hversu mikil líking er í gerð allra blóðheitra dýra, hvort heldur það eru ferfætlingar, luglar, sem lifa ýmist í vatni eða á landi eða jafnvel mannsins sjálfs. Mús og leðurblaka annars vegar og fíll og hvalur hins- vegar hafa svo margt sameiginlegt, að það fær oss til að álykta, að þessi dýr hafi orðið til á líkan hátt af einsgerðum lífsþræði. í fimmta lagi: Frá fyrsta upphafi sínu til enda- dægurs verða öll dýr fyrir stöðugum breytingum, sem að nokkru leyti verða f'yrir tilverknað sjálfra þeirra, sem afleiðing af óskum þeirra eða óbeit, ánægju eða sársauka, hermihneigð eða vegna félagsskapar. Og mörg þessara áunnu forma eða tilhneiginga ganga í erfðir til alkomendanna. (Chancellor 1981, bls. 36-39.) Þróunarhugmyndir Erasmusar virðast hvergi hafa vakið teljandi athygli. Charles Dar- win heldur því til dæmis fram að þær haft ekki - fremur en kenningar Lamarcks - mótað hugsanir sínar um uppruna legundanna. Lamarck Jean-Baptiste de Monet, riddari af Lamarck (1744-1829), var fjölmenntaður franskur náttúrufræðingur (4. mynd). Hann lagði upphaflega einkum stund á grasafræði og 186
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.