Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 47

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 47
Georges Cuvier, sem setti fram aðra kenningu um eðli lífheimsins og beitti valdi sínu til að halda Lamarck niðri. Löngu síðar komu aftur fram hugmyndir um erfðir áunninna eiginleika og höfðu um skeið nokkur áhrif eins og síðar verður vikið að. CUVIER Georges Cuvier barón (1769-1832), franskur dýrafræðingur og stjórnmálamaður (7. mynd), lagði grunninn að tveimur fræði- greinum, samanburðarlíffærafræði dýra og steingervingafræði, auk þess sem hann lét til sín taka í flokkunarfræði. Eins og Lamarck starfaði hann við Franska náttúrugripa- safnið þar sem hann veitti forstöðu hrygg- dýradeildinni. Á fyrstu árum nítjándu aldar birti hann „samsvörunarreglu“ sína, sem gengur út á það að greina megi samsvörun milli allra líffæra í dýrum sérhverrar tegundar og að öll líkamsgerð dýranna ráðist af lífsháttum þeirra. Þannig hljóta hyrnd dýr til dæmis að hafa hófa og tennur lagaðar að plöntufæðu sem öll þessi dýr lifa á. Klær og vígtennur væru óhugsandi á slíkri skepnu. Cuvier beitti samsvörunarreglunni einnig við túlkun á steingervingum. Áður lásu menn úr slíkum leifunt ýmis furðudýr en Cuvier gat með samanburði við önnur dýr, núlifandi eða steingerð, endurskapað heila líkama útdauðra dýra þótt hann hefði aðeins leifar lítils hluta þeirra. Þegar aðrir partar dýranna fundust reyndist Cuvier oft hafa farið furðunærri réttri líkamsgerðþeirra. Cuvier hafnaði lífskeðju Lamarcks og öllum tilraunum til að skipa dýrunum í eina röð frá þeim einföldustu til hinna flóknustu. Hann skipti dýrarfkinu, jafnt lifandi sem aldauða tegundum, í fjórar höfuðgreinar (embranchements), animalia vertebrata, animalia annulata, .animalia mollusca og animalia radiata, sem Jónas Hallgrímsson út- lagði hryggdýr, hringdýr, lindýr og skádýr. Hryggdýrin-og lindýrin hafa haldið sínu til þessa dags; hringdýr er samheiti unt liðdýr og liðorma og skádýr eru einkum skrápdýr og holdýr. Á milli þessara höfuðgreina taldi Cuvier engan skyldleika, enda var öll hugsun um þróun lífvera honum framandi. Sem 7. mynd. Georges Cuvier barón. Hluti af málverki eftir Van Brae. (Musée Nationale d’Histoire Naturelle, París.) höfundur vísindalegrar steingervingafræði gerði hann sér að sjálfsögðu ljóst að lífheimurinn hefði tekið miklum breytingum í tímans rás. Þær breytingar skýrði Cuvier þannig að annað veifið hefðu miklar nátt- úruhamfarir gengið yfir hluta jarðar og eytt fjölda tegunda. í þeirra stað hefðu komið aðrar, sem áður lifðu á stöðum er sluppu við hörmungarnar. Tegundirnar væru allar eins og guð skóp þær í upphafi. Samt gerir Cuvier ráð fyrir því að einu sinni í sögu jarðar, í upphafi tertíertímabils, hafi ný sköpun átt sér stað, en þá hafi öll spendýr orðið til samtímis. Að öðru leyti virðist hann ekki ganga út frá því að nauðsynlegt sé að grípa til nýrrar sköpunar til að skýra þær breyting- ar á lífríkinu er lesnar verða úr jarðlögunt. (SjáBowler 1984, bls. 1 lOog 111). Cuvier naut með réttu óskoraðrar virðing- ar fyrir störf sín á sviði líffærafræði, stein- gervingafræði og flokkunarfræði. Þessi virðing færðist líka yfir á hamfarakenning- una. Hann var auk þess áhrifamaður í frönskum stjórnmálum og beitti vísinda- legum og pólitískum áhrifum gegn keppi- nauti sínum, Lamarck, að margra mati ódrengilega. Lamarck galt þess líka að andrúmsloftið í heimalandi hans var breytt. I stað hins leitandi anda upplýsingaaldar ríktu mun íhaldssamari viðhorf Napóelons- tímans. Þróun lífsins var urn sinn dæmd úr leik. Boðberar hennar á nítjándu öld hófu 189
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.