Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 50
kenningarinnar (9. mynd). Lyell hafnaði öllum yfirnáttúrlegum skýringum á mótun jarðar og taldi ekki aðeins að sömu öfl og við þekkjum nú hefðu alla tíð verið þar að verki heldur líka að þau hefðu alltaf verkað ámóta hægt og nú. Samkvæmt þessu hlaut jörðin að vera mjög gömul. Lyell rannsakaði jarðmyndanir víða, bæði á Bretlandi og erlendis. A árunum 1830 til 1833 birti hann í þremur bindum frumútgáfu meginrits síns, Prínciples of Geology, „Grundvallaratriði jarðfræðinnar“, sem hlaut mikla athygli og viðurkenningu. Charles Darwin hreifst af kenningum og stíl Lyells og sótti margt til hans þegar hann setti fram þróunarkenningu sína. Lyell var í fyrstu mótfallinn henni en lét svo sannfærast. Agassiz Jafnt í hópi samfellusinna sem hamfarasinna voru um þetta leyti náttúrufræðingar sem töldu að drottinn hefði haldið áfram að skapa eftir að upphaflegu sköpuninni lauk. Þessar hugmyndir gengu allar út frá því að tegundirnar væru óbreytanlegar hvort sem 10. mynd. Louis Agassiz. (Museum ofCom- parative Zoology, Harvard University.) þær hefðu verið skapaðar snemma eða seint. Hér skal tilgreindur einn fulltrúi þessa hóps, sem er jafnframt einn virtasti vísindamaður- inn meðal þeirra samtímamanna Darwins er aldrei féllust á þróunarkenningu hans. Louis Agassiz (1807-1873) fæddist í Sviss (10. mynd). Hann sótti menntun í náttúru- fræði og læknisfræði til Þýskalands, lagði svo leið sína til Parísar þar sem hann kynntist Alexander von Humboldt, frægum þýskum náttúrufræðingi og landkönnuði, og Georges Cuvier, oddvita franskra nátt- úrufræða á þessum tíma. Við tók prófessors- staða í Neuchátel í Sviss (1832-1846), þar sem Agassiz rannsakaði steingervinga út- dauðra fiska og srðan annarra dýra. Rit hans, Recherches sur les poissons fossiles, „Rannsóknir á steingerðum fiskum“, hefði eitt nægt til að tryggja honum virðingarsess r vísindasögunni. Árið 1836 sneri Agassiz sér að jökla- rannsóknum og stórjók þekkingu manna á ísöldinni. Hann þekktist boð um fyrirlestra- ferð til Bandaríkjanna 1846 og ílentist þar allt til æviloka sem prófessor í dýrafræði við Harvardháskóla. í Vesturheimi rannsakaði Agassiz ýmis svið, allt frá jarðfræði Efra- vatns til fósturfræði skjaldbakna. Hann lagði grunn að rannsóknasafni í saman- burðardýrafræði við Harvardháskóla, sem nú er heimsþekkt, og gerbylti einnig aðferðum við kennslu í náttúrufræðum, með áherslu á snertingu við náttúruna. Sam- kvæmt Encyclopædia Britannica voru „allir málsmetandi kennarar í náttúrusögu í Bandaríkjunum á srðari hluta 19. aldar annaðhvort nemendur Agassiz eða ein- hvers af lærisveinum hans“3. Agassiz, sem var hamfarasinni, taldi að náttúrleg fyrirbæri á við breytingar á lofts- lagi eða sjávarstöðu gætu eytt tegundum en ekki myndað nýjar. Að mati hans er líf- heiminum haldið við með endurtekinni íhlutun drottins sem skapað liefur sífellt 3 Framlag Agassiz til náttúrufræðikennslu má að hluta þakka síðari konu hans, Elizabeth Cabot Cary. Hún var bandarísk, náttúrufræðingur að mennt og frömuður í skólamálum. Eftir lát manns síns stofnaði hún deild fyrir konur við Harvard- háskóla og varð fyrsti forseti hennar. 192
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.