Náttúrufræðingurinn - 1999, Síða 104
aðstoðarmenn, auk samkennara, svo hann
gæti einbeitt sér sem mest að rannsóknum
sínum í jarðefnafræði.
A þessum tíma var fjöldi vísindamanna í
fremstu röð í eðlis-, efna- og stærðfræði í
Göttingen og samskipti Goldschmidts við
þessa starfsbræður sína hafa vafalaust
getið af sér margar nýjar hugmyndir, enda
eru þau sex ár sem hann starfaði í Göttingen
líklega hans frjóustu. Hann hélt áfram með
kristalefnafræðina en sneri sér jafnframt af
fullum krafti að greiningu þeirra ferla sem
réðu dreifingu frumefnanna á jörðinni og
þeirri hringrás sem þau tóku þátt í. Hér
verður kolefni tekið sem dæmi. Á 5. mynd er
kolefnishringferlið sýnt eins og Gold-
schmidt dró það upp í vísindagrein sem
birtist árið 1934.
Kolefni jarðar er að langmestu bundið í
kalksteini (kalsíum karbónat) og dólómíti
(kalsíum-magnesíum karbónat). Mikið magn
er auk þess í kolum, olíu og gasi, talsvert í
sjó og vatni, minna í lífverum og jarðvegi og
minnst í andrúmsloftinu. Kolefnið flyst milli
þessara forðabúra. Við myndbreytingu og
veðrun kalksteins og dólómíts losnar kolefni
sem berst út í andrúmsloftið og sjóinn og
annað vatn sem koltvíoxíð. Auk þess berst
kolefni í þessi forðabúr með kviku úr iðrum
jarðar, kolefni sem aldrei áður hefur litið
dagsins ljós. Utfelling kalks og dólómíts úr
vatni leiðir til myndunar kalksteins og
dólómíts. Á sambærilegan hátt getur ferging
lífrænna leifa leitt til myndunar biks, kola,
olíu eða jarðgass. Eins og sjá má áf mynd
Goldschmidts eru skiptin þó langsamlega
örust milli andrúmslofts og vatns annars
vegar og lífvera og jarðvegs hins vegar. Þá
sýnir mynd Goldschmidts verulega öran
flutning kolefnis í andrúmsloft og vatn
vegna bruna á kolum og olíu. í grein í
Teknisk Ukeblad frá 1936 ritar hann:
„Kolefnishringrásin er sérstaklega áhuga-
verð þar sem hún sýnir mikilvægi bruna kola
og annars eldsneytis fyrir koltvíoxíð-
innihald andrúmsloftsins... Þetta sýnir að
starfsemi manna nú á dögum er mikilvægt
jarðefnafræðilegt ferli.“
Hér kemur Goldschmidt í raun inn á það
sem nú nefnast gróðurhúsaáhrif. Koltvíoxíð
í andrúmsloftinu hefur aukist verulega á
þessari öld vegna sívaxandi bruna á kolum,
olíu og gasi, og hlýtur það að leiða til þess
fyrr eða síðar að meðallofthiti á jörðinni
hækki. Ástæðan er sú að koltvíoxíðið í
loftinu hindrarútgeislun varma frájörðu líkt
og gler gerir. Þaðan kemur orðið gróður-
húsaáhrif.
■ afturtil noregs og
HEIMSSTYRJALDARÁRIN
Þegar Goldschmidt lluttist til Göttingen fóru
foreldrar hans með honunt. Faðir hans hafði
þá látið af störfum sem prófessor við
Háskólann í Osló fyrir aldurs sakir. Skömmu
eftir að til Göttingen kom lést móðir hans.
Meðan Goldschmidt var í Göttingen
komust nasistar til valda. Nokkrum árum
síðar neyddist hann til að segja starfi sínu
lausu og hrökklaðist frá Þýskalandi. Komst
hann til Noregs ásamt föður sínum, slyppur
og snauður. Enn er til bréf, undirritað af Hit-
ler og Göring, þar sem fallist er á upp-
sagnarbeiðni Goldschmidts og hann leystur
frá störfum sem opinber starfsmaður Þriðja
ríkisins.
Goldschmidt fékk aftur starf við Hráefna-
stofnunina í Osló þegar hann yfirgaf Þýska-
land 1935. Eftir að seinni heimsstyrjöldin
braust út og nasistar hertóku Noreg var
Goldschmidt tekinn fastur og settur í
vinnubúðir. Einhvern veginn heppnaðist
vinum hans að fá hann leystan úr þessum
búðum og tókst honum að l'lýja til Svíþjóðar
1942. Var hann grafinn í hey á vagni og
slapp þannig óskaddaður yfir landamærin,
þótt sagan segi að nasistar hafi rekið bitjárn
í heyið til að sannfæra sig um að enginn
leyndist í því. Kona nokkur, Sigrid Elena
Grúner, lagði sig í lífshættu við flótta
Goldschmidts. I Svíþjóð kynnti hann hana
sem unnustu sína. Þau giftust aldrei og
sagan segir að þetta sé í eina skiptið sem
Goldschmidt hafi verið við kvenmann
kenndur.
246