Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 108
var endurráðin hjá Náttúrufræðistofnun og
sem ritstjóri HIN á árinu og til ársins 2000.
Stjórnarfundir voru 7 á árinu eða jafn-
margir og á milli aðalfunda. Gefin voru út 6
félagsbréf á árinu. Stjórn HÍN sendi á
sjöunda tug jólakorta til vina sinna, vel-
unnara og annarra þeirra sem félagið á gott
upp að inna.
■ NEFNDIR OG RÁÐ
Sömu limir sátu í ritstjórn og fagráði
Náttúrufræðingsins og árið áður. Ritstjórn
skipuðu Áslaug Helgadóttir, formaður, Árni
Hjartarson, Gunnlaugur Björnsson, Lúðvík
E. Gústafsson og Marta Ólafsdóttir, en auk
þeirra sat Hreggviður Norðdahl fundi rit-
stjórnar sem fulltrúi stjórnar HÍN. í fagráði
Náttúrufræðingsins sátu Ágúst Kvaran
efnafræðingur, Borgþór Magnússon
gróðurvistfræðingur, Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur, Guðmundur V. Karlsson
framhaldsskólakennari, Guðrún Gísladóttir
landfræðingur, Hákon Aðalsteinsson
vatnalíffræðingur, Ingibjörg Kaldal jarð-
fræðingur, Leifur Á Símonarson jarð-
fræðingur, Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur
og Ólafur Astþórsson fískifræðingur.
I ritstjóm Náttúrufræðingatals sat Frey-
steinn Sigurðsson. Utbreiðslunefnd skipuðu
Erling Ólafsson, Hreggviður Norðdahl og
Sigmundur Einarsson, en hún var lögð niður á
árinu. Ferðanefnd skipuðu Eyþór Einarsson,
Freysteinn Sigurðsson og Guttormur Sig-
bjamarson. Nefnd um skipan náttúmrann-
sókna skipuðu Freysteinn Sigurðsson,
Guttormur Sigbjamarson, Hreggviður Norð-
dahl og Sigurður S. Snorrason, en störf hennar
lágu að miklu leyti niðri á árinu.
■ AÐALFUNDUR
Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags
fyrir árið 1997 var haldinn laugardaginn 28.
febrúar 1998, kl. 14-16, í stofu 101 í Odda,
Hugvísindahúsi Háskólans. Fundarstjóri var
Eyþór Einarsson, grasafræðingur, en
fundarritari Barði Þorkelsson, jarðfræðingur.
VlÐURKENNING HlNS I'SLENSKA
NÁ TTÚRUFRÆÐIFÉLAGS
Viðurkenning stjórnar HIN fyrir framlag til
kynningar á náttúrufræði var þessu sinni
veitt þeim Örnólfi Thorlacius, náttúru-
fræðingi, og Sigurði H. Richter, líffræðingi,
fyrir umsjón þeirra með sjónvarpsþættinum
„Nýjasta tækni og vísindi" um langt árabil.
K/ör heiðursfélaga
Að tillögu stjórnar voru þeir Arnþór
Garðarsson, líffræðingur, og Kristján
Sæmundsson, jarðfræðingur, einróma
kjörnir heiðursfélagar HÍN. Kristján var
sæmdur gullmerki félagsins og þakkaði
hann fyrir sig með nokkrum orðum. Arnþór
gat ekki verið viðstaddur aðalfundinn og
varð því merking hans að bíða betra færis.
Skýrsla FORMANNS
Formaður félagsins, Freysteinn Sigurðsson,
flutti skýrslu um starfsemi félagsins á árinu
1997. Veruleg fækkun varð í félaginu á árinu.
Þar eru ugglaust sömu öfl að verki og verið
hafa um árabil, og gætir þess raunar í
starfsemi fleiri fræðslu- og hugsjónafélaga á
þessum árum. Þar er aukin samkeppni um
athygli, tíma og fjárframlög landsmanna efst
á blaði, en aukið framboð á náttúrufræðilegu
efni í fjölmiðlum og með öðru móti dregur
einnig úr sérstöðu HIN á því sviði, svo
ánægjuleg sem þessi aukning annars er.
Þrjár stoðir munu helstar vera undir aðild
fólks að félaginu. Fyrst skal telja beina
fræðslu. Einungis örfá hundruð félags-
manna nýta sér fræðslufundi og fræðslu-
ferðir, en ánægja er yfirleitt mikil með þá
þjónustu félagsins hjá njótendum. Því er
ekki ástæða til að hrófla við þeirri hefð-
bundnu starfsemi, sem verið hefur með
þessu sniði í marga áratugi, eða stöðugt frá
1922 (fræðslufundir) og 1942 (fræðsluferðir).
Meira framboð á þeim vettvangi hefur
fengið misjafnar undirtektir og virðist ekki
endilega vera vænlegt til vinsælda. Þannig
hafa fyrirhugaðar ferðir og námskeið fallið
niður vegna ónógrar þátttöku. Það þjónar hins
vegar ekki markmiðum HÍN að laða að fólk með
æsifréttafundum og ævintýraferðum.
Önnur stoð er meginstoð, því aðalnot
250