Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 109

Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 109
meginhluta félagsmanna af aðild að HÍN eru áskriftin að Náttúrufræðingnum. Stopul útgáfa hans er því trúlega letjandi fyrir aðild að félaginu, þó að efni hans virðist almennt lfka vel. Það er því forgangsverkefni að koma útgáfu hans í gott lag. Vel má vera að verð tímaritsins (og þar með árgjöld félagsins) sé nokkuð hátt, en við því verður ekki gert, nema með stórauknum fjölda félaga eða einhverjum nýjum tekjuliðum, t.d. auglýsingatekjum eða aukasölu á sérheftum um fræðasvið eða landsvæði. Hik hefur verið á stjórn félagsins að víkja frá hefð í útgáfu og gerð tímaritsins að því leyti, en vera má að nauðsyn brjóti þar forna siðu, áður en langt um líður, ef svo fer fram sem horfir. Enn má ugglaust hyggja betur að því að sníða efni Náttúrufræðingsins að þörfum þess áhugasama almennings sem les hann. Til þessa hóps teljast þeir náttúrufræðingar sem kaupa Náttúrufræðinginn, en það er ekki nema lítill minnihluti hátt á annað þúsund háskólaprófaðra náttúrufræðinga á landinu, þó svo að hlutfallið sé samt miklu hærra en hjá öðrum þjóðfélagshópum. Hinir náttúrufræðingarnir virðast vera svo upp- teknir af eigin þröngsérfræði, áhugalitlir um almenna náttúrufræði, eða svo á kafi í erli dagsins að almenn og víðfeðm náttúrufræði höfði ekki til þeirra. Náttúrufræðingurinn er ekki og getur ekki verið sainsafn eða vett- vangur fyrir torskildar þröngsérfræði- greinar, sem einungis örfáir tugir manna geta lesið sér til gagns eða ánægju. Sem betur fer hafa margir sérfræðingar enn getu og vilja til að skrifa á ljósan og auðskilinn hátt um sérfræði sín fyrir almenning og aðra notendur, þannig að fullum vísindalegum kröfum sé fullnægt en lesendur megi þó langflestir hafa af gagn og ánægju. Slíkt efni hefur verið lögð áhersla á að birta í Náttúru- fræðingnum og er ekki sýnileg ástæða til að hvika frá þeirri stefnu. Þessar stoðir báðar lúta að fræðslu um náttúrufræðileg efni. Þriðja stoðin er önnur vinna að markmiðum félagsins. Svo er að heyra sem HÍN hafi getið sér gott orð hjá opinberum aðilum, sem hlutlægur umsagn- araðili í málum er varða náttúru landsins og náttúruvernd. Yfirveguð og öfgalaus afstaða HIN er til lengdar líklegri til árangurs en einlitar skoðanir og æsingamálflutningur, hversu mjög sem vandamálin kunna að brenna á sumum og þörf stundum að bregð- ast hart við. Vel má vera að félagið þurfi að láta meira að sér kveða um flutning slíkra mála á almennum vettvangi. Einnig má vera að félagið ætti að hafa meira frumkvæði í því að flytja þau mál sem eru til framdráttar stefnu þess og markmiðum. Því eru þó takmörk sett af sjálfboðavinnu stjórnar og ólaunaðra starfsmanna, en að auki af fjárhag félagsins. Starfsemi félagsins var að öðru leyti með hefðbundnum hætti, eins og nánar greinir í skýrslu þessari. Áhersla hefur verið lögð á gott samstarf við Náttúrufræðistofnun Islands, sem skvlt er því að hún er afsprengi félagsins og rekur jafnan forsögu sína í ferli náttúrugripasafns þess. Markmið félags og stofnunar eru enda svipuð eða hin sömu í mörgum greinum: Efling rannsókna á náttúru landsins, efling á kynningu og útgáfu náttúrufræðlegs efnis, eíling skynsamlegrar vemdar og nýtingar á náttúru landsins. Reikningar félagsins Gjaldkeri félagsins, Kristinn J. Albertsson, kynnti reikninga félagsins fyrir árið 1997 og voru þeir samþykktir án athugasemda. Velta félagsins var um 5(/2 milljón króna og var nokkurt tap á rekstri þetta árið, en sveiflur eru jafnan nokkrar milli ára, eftir því hvernig útgáfu Náttúrufræðingsins vindur fram. Fé í sjóði var rúmlega 3 millj. kr., eða aðeins meira en ári fyrr. Eignir umfram skuldir (að með- töldum birgðum og útistandandi kröfum) voru rúmlega 5 millj. kr., eða svipaðar og ári fyrr. Fjárhagur félagsins er því áfram þröngur, þótt ekki sé hann sérlega bágur. Árgjald fyrir 1997 var óbreytt, 3.300 kr. fyrir einstaklinga; árgjald hjóna var 3.900 kr. og árgjald ungmenna (að 23 ára aldri, „skóla- félagar") 2.200 kr. Stjórn HÍN ákvað í árslok 1997 að hækka yrði árgjöld fyrir árið 1998 í 3.600 kr. fyrir einstaklinga, 4.200 kr. fyrir hjón og 2.400 kr. fyrir ungmenni. Dýraverndarráð Fulltrúi HÍN í Dýraverndarráði, Páll Hersteinsson, gat ekki mætt á fundinn, en 251
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.