Náttúrufræðingurinn - 1999, Qupperneq 110
sendi skriflega skýrslu sína, sem formaður
kynnti áfundinum. Fram kom í skýrslunni að
ráðið hafði fjallað um þrjár reglugerðir
varðandi dýravernd, fjallað um ýmsar
leyfisveitingar, þ.á m. dýrasýningar, allt frá
skriðdýrum til hrossa, fjallað um leyfi til
dýrahalds í atvinnuskyni og um brot á
dýraverndunarlögum, en þau hafa verið fá,
sem betur fer. Alls hafði ráðið komið saman
37 sinnum frá 1994, eða nærfellt tíu sinnum á
ári aðjafnaði.
St/ÓRNARKIÖR
Ur stjórn áttu að ganga formaður félagsins,
Freysteinn Sigurðsson, gjaldkeri þess,
Kristinn Albertsson, og ritari, Þóra Elín
Guðjónsdóttir. Þau gáfu öll kost á sér til
endurkjörs og voru endurkjörin einróma.
Varamenn í stjórn, Helgi Guðmundsson og
HólmfríðurSigurðardóttir, voru endurkjörin
einróma. Sömuleiðis voru endurskoðendur
endurkjörnir, Tómas Einarsson og Kristinn
Einarsson, og Arnór Þ. Sigfússon sem
varaendurskoðandi.
Önnur mál
Fram voru lagðar 8 tillögur til ályktunar frá
stjóm HÍN, en af þeim voru 4 ítrekaðar
ályktanir frá fyrra ári og 3 viðbætur við þær
ályktanir. Freysteinn Sigurðsson og Hilmar J.
Malmquist mællu fyrir ályktunum. Nokkrar
umræður urðu um tillögumar, en þær vom
síðan samþykktar með litlum breytingum, sem
stjóm HIN var falið að ganga frá. Tvær tillögur
um sama efni vom felldar saman, svo að
ályktanimar urðu 7 talsins. Hljóða þær svo í
endanlegum frágangi:
Ítrekun á ályktunum um
ÞiNGVALLASV/EÐIÐ.
Náttúrufarsrannsóknir og friðun
„Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræði-
félags (HÍN), haldinn 28. febrúar 1998 í
Reykjavík, ítrekar ályktun aðalfundar HÍN
frá I. mars 1997 og ályktanir aðalfundar HÍN
17. febrúar 1996 um náttúrufarsrannsóknir á
vatnasviði Þingvallavatns og um friðland á
sama svæði, svohljóðandi:
Því er beint til hlutaðeigandi stjórnvalda
að láta fara fram könnun og kortlagningu á
náttúmfari (jarðfræði, gróðurfari og vatnafari)
svæðisins og stuðla að útgáfu viðeigandi
korta og upplýsingarita um svæðið fyrir
almenning og gesti á svæðinu. Minnt skal á að
veruleg gögn eru nú þegar fyrir hendi um
náttúmfar svæðisins. Einnig er ítrekuð þörl'
þess að koma á viðeigandi vöktun á hinu
athyglisverða lífnki í Þingvallavatni.
Jafnframt er því beint til hlutaðeigandi
stjórnvalda að vatnasvið Þingvallavatns og
umhverfi þess verði friðað á viðeigandi hátt,
t.d. með því að stofna friðland. Er bent á að
sú friðun getur verið mismunandi eftir
svæðum.“
Stutt greinargerð fylgir.
Hálendi Islands: Friðland
FJÓÐARINNAR. ÍTREKUN Á ÁLYKTUN
ADALFUNDAR HÍN 1997
„Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræði-
félags (HÍN), haldinn 28. febrúar 1998 í
Reykjavík, ítrekar ályktun aðalfundar HÍN
frá I. mars 1997, og skorar á Alþingi að
stofna til friðlands á hálendi íslands með því
að setja sérstök lög þar að lútandi, með
vernd náttúru í fyrirrúmi.“
Vísað er til greinargerðar með ályktun
aðalfundar HÍN um „Hálendi íslands“ frá 1.
mars 1997.
VlÐBÓT VIÐ ÍTREKAÐA ÁLYKTUN UM
Hálendi Islands: Hálendi Islands:
St/órnsýsla á hálendinu
„Aðalfundur Hins íslenska náttúrufræði-
félags (HÍN), haldinn 28. febrúar 1998 í
Reykjavík, beinir þeim tilmælum til Alþingis
og ríkisstjórnar, að stjórnsýsla á Mið-
hálendinu, þ.m.t. skipulag og löggæsla,
verði til næstu fjögurra ára falin með lögum
aðliggjandi sveitarfélögum og ríkisstjórn í
sameiningu, en stjórnsýsla á hálendinu
verði að sinni ekki fest með lögum til langs
tíma, meðan þær umbreytingar eru í fullum
gangi á skipan og sameiningu sveitarfélaga
á landinu sem nú eru. Þær breytingar kunna
á næstu árutn að kalla einnig á mjög miklar
breytingar á millistigum í stjórnsýslu lands-
ins, sýslum og umdæmum af stærð kjör-
dæma eða landsfjórðunga.“
Greinargerð fylgir.
252