Náttúrufræðingurinn - 1999, Qupperneq 112
ljósi síðustu umbrota og Skeiðarárhlaup í
nóvember 1996. Fundinn sóttu 98 manns.
24. mars: Olafur Einarsson, fuglafræð-
ingur: Alftir, heima og að heiman. Fundinn
sóttu 37 manns.
28. apríl: Hilmar J. Malmquist, líffræð-
ingur: Lífríki íslenskra vatna. Fundinn sóttu
32 manns.
26. maí: Guðmundur Guðjónsson, land-
fræðingur: Gróðurkortagerð. Fundinn sóttu
20 manns.
27. október: Ágúst Guðmundsson, jarð-
fræðingur: Tröllaskagi í myndun og mótun.
Fundinn sóttu 67 manns.
24. nóvember: Sigurður Guðjónsson,
fiskifræðingur: Vistfræði laxins. Fundinn
sóttu 28 manns.
Fundir þessir voru kynntir í dagskrám
dagblaða og útvarps og kann HIN fjöl-
miðlum þessum bestu þakkir fyrir þá greiða-
semi. Háskóla Islands er þakkað fyrir afnot
af fyrirlestrasölum og hússtjórnendum í
Lögbergi og Odda er þakkað fyrir þjónustu
við undirbúning funda.
■ FRÆÐSLUFERÐIR OG
NÁMSKEIÐ
Farnar voru fjórar ferðir, þar af tvær í
samvinnu við Ferðafélag íslands. Fyrir-
huguð sólstöðuferð í Haukadal féll niður
vegna dræmrar þátttöku, en fyrirhuguð
sveppatínslu- og skógarskoðunarferð í
Heiðmörk, í samvinnu við Ferðaífélagið, féll
niður vegna forfalla leiðbeinanda. Langa
ferðin var farin í Skagafjörð 24.-27. júlí.
Þátttaka í ferðum þessum var ágæt. Leið-
beinendur voru sjö, auk fararstjóra. Fyrir-
huguð voru tvö námskeið (um gerð og
notkun jarðfræðikorta og um plöntugrein-
ingu og notkun gróðurkorta) en þau féllu
niður vegna of lítillar þátttöku. Bagalegt er
að verða að fella niður vel undirbúnar ferðir
eða námskeið vegna áhugaleysis, en ekki
verður ráðið við markaðslögmálin í þeim
efnum. Annars var þátttaka í ferðunum vel
viðunandi og þóttu þær takast vel. Leið-
beinendum er þakkað fyrir vandaðan
undirbúning og skýra og skemmtilega
kynningu. Guðmundi Jónassyni hf. og
bílstjórum fyrirtækisins er þakkað fyrir
einmuna lipurð, lagni og ljúfmennsku við
flutning þátttakenda í ferðunum. Einnig
þakkar HÍN fyrir góðar móttökur og fyrir-
greiðslu á gisti- og áfangastöðum í ferðum
félagsins.
SUMARMÁLAFERÐ Á SkEIÐARÁRSAND
Skoðunarferð á Skeiðarársand var farin
helgina 19. og 20. apríl, til að skoða
ummerkin eftir Skeiðarárhlaupið mikla, 5.
nóvember 1996. Farið var á tveimur bílum frá
Guðmundi Jónassyni og lagt upp frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 9 á laugardags-
morgun, 19. apríl. Leiðsögumaður var Oddur
Sigurðsson, jarð- og jöklafræðingur, en
fararstjórar voru Guttormur Sigbjarnarson,
framkvæmdastjóri HIN, og Freysteinn
Sigurðsson, formaður HIN. Þátttakendur
voru 68 talsins. Farið var rakleiðis austur á
Skeiðarársand, með viðkomu á Hvolsvelli,
Vík og Kirkjubæjarklaustri, en hádegishlé
var í Vík. Dumbungsveður var austur á Mýr-
dalssand en þar urðu veðraskil, eins og oft
vill vera, og hið besta veður austan hans,
hægviðri, léttskýjað, sólskin og þurrt.
Lofthiti var 5-9°C. Hæga jöklagolu gerði
svo í bjartviðrinu um kvöldið.
Komið var um kl. 14 á sandinn og
staðnæmst við brýrnar á Núpsvötnum og
Sandgígjukvísl. Síðan var farið upp með
Háöldukvísl og á gamla, góða bílastæðið
bak við jökulölduna þar, sem hafði góðu
heilli sloppið við eyðileggingu í hlaupinu.
Mikil umferð varþennan dag á sandinum og
taldi einhver 22 hópferðabíla á stæðinu,
þegar mest var. Frá stæðinu var gengið inn í
„ísbyrgi" það sem myndast hafði um útfall
hlaupsins úr jöklinum. Þurfti fyrst að stikla,
stökkva eða vaða yfir jökullænu niðri undir
stæðinu, en á heimleiðinni hafði vaxið vel í
henni og þurftu þá ýmsir að vaða sem inn úr
fóru þurrum fótum. Mikill fólksstraumur var í
ísbyrgi og úr. Gafst gott færi í bjartviðrinu til
að skoða rekjaka, allt upp í margar mann-
hæðir að stærð, jökulhamrana að hlaup-
farveginum, grjótrastir, vatnsrásir og önnur
ummerki eftir hlaupið. Aftur var komið á
bílastæðið um kl. 17 og haldið þaðan eftir
254