Náttúrufræðingurinn - 1999, Síða 114
undir forystu Guttorms og höfðu þar
ógleymanlega uppgöngu. Hinir fóru undir
forystu Freysteins inn í Hegranes og
skoðuðu búðarústir og aðrar menjar Hegra-
nesþings hjá Garði, en vitjuðu svo aftur
félaga sinna við hina nýju Grettislaug hjá
Reykjum. Komið var undir kl. 22 aftur í
Varmahlíð.
Laugardaginn 26. júlí var lagt upp um kl. 9
og var þá Arni Hjartarson kominn til
leiðsagnar. Veður var dágott, milt og hæg
norðangola, lofthiti um 15°C, skýjað og
sólarlaust en þurrt framan af degi. Var haldið
fram á Vesturdal, inn fyrir Giljar og inn undir
Klif. Þaðan var gengið nokkurn spöl fram á
dalinn til að ná betri sýn inn á hann. Horfið
var svo aftur og snúið yfir á Austurdal, allt
inn að Skatastöðum. Þar var tekið hádegis-
hlé og fylgst með ferðalöngum á fljóta-
flekum (,,river-rafting“) leggja á Austari-
Jökulsá. Frá Skatastöðum sér vel inn að
Árbæ og inn á Austurdal. Kláfur er á Jökulsá
við Skatastaði og greip garpsskapur suma
ferðalangana, svo að 24 þeirra fóru yfir á
kláfnum og gengu fram að Árbæ undir leið-
sögn Árna og Guttorms. Er margt forvitni-
legt af menningarminjum á Árbæ, jarðfurður
í Árbæjargili og í Miðhúsahólum, dala-
gróður óvenjugróskumikill í sólríkinu og
þurrveðrafarinu í hlíðunum og landslag hið
fegursta. Freysteinn fylgdi hinum út að brú
yfir til Merkigils og var þar gengið yfir í
hlíðina til skoðunar. Síðdegisskúrir skullu á
göngumenn á bakaleið frá Árbæ. Komið var
út í Varmahlíð upp úr kl. 18, en þar fór fram
plöntugreiningarkeppni um kvöldið.
Sunnudaginn 27. júlí var lagt upp frá
Varmahlíð um kl. 10 áleiðis suður. Veður var
áfram milt og gott, lofthiti 12-16°C, hægviðri
og léttskýjað, en þó sólarlítið og gerði skúr á
Bláfellshálsi, en bjart þaðan og suður. Farið
var um Kjalveg og staðnæmst á Áfangafelli
og horft yfir heiðar og Blöndulón. Hádegis-
hlé var gert á Hveravöllum en verðlaun fyrir
veðurspárkeppni og plöntugreiningu voru
afhent á Fjórðungsöldu. Staldrað var á Blá-
fellshálsi og við Gullfoss en suður til
Reykjavíkur var komið um kl. 19 um
kvöldið.
NáttúruperlurAustur-Skaftafellssýslu
Skoðunarferð um náttúruperlur Austur-
Skaftafellssýslu var farin 21.-24. ágúst.
Fyrirhugaður leiðsögumaður, Jón Jónsson
jarðfræðingur, forfallaðist en í hans stað
komu heimamennirnir Hannes Jónsson frá
Núpsstað og Einar Jónsson, Hofnesi.
Ferðafélagið sá um fararstjóm, en þátt-
takendur vora 26 talsins. Voru þeir einkar
ánægðir með ferðina.
■ ÚTGÁFA
Út komu 2. hefti og 3.-4. hefti saman
(tvöfalt) af 66. árgangi og 1. og 2. hefti af 67.
árgangi Náttúrufræðingsins. Ritstjóri hans
var Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur og
starfsmaður Náttúrufræðistofnunar íslands.
Haldið var áfram á þeirri braut að hafa
tímaritið alþýðlegt, en þó í engu slakað á
vísindalegum kröfum, einkum til lengri og
vandaðri greina. Sala á bókum félagsins var
misjöfn. Náttúra Mývatns (útgefin 1991)
seldist talsvert á bókamarkaði og íslensk
spendýr (útgefin 1993, með Landvernd)
seldist upp, en Þingvallabókin (útgefin
1992, gjöf frá Hinu íslenska fræðafélagi) og
Surtseyjarbókin (útgefin 1994, með Surts-
eyjarfélaginu) seldust dræmt.
■ ÖNNUR SÝSLAN
Stjóm HÍN fjallaði um frumvarp til námulaga
og frumvarp til laga um náttúruvernd (hvort
tveggja í apríl). Einnig veitti stjórn HÍN
umsögn til skipulagsstjóra um drög að
skipulags- og byggingarreglugerð (í nóv-
ember).
256