Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 6
Það er gleðilegt tákn tímanna, að æskulýðurinn gerir
sér meira og meira far um að njóta frelsis og gleði
undir berum himni, langt frá ryki kaupstaðanna, langt frá
hversdagsáhyggjum og dægurþrasi. Æðsta markmið hvers
einstaklings, hvort sem hann er ungur eða ganall, er án
efa það, að lifa í jafnvægi við umhverfi sitt. Einstaklingur-
inn er því sælli, því fullkomnara sem jafnvægi hans við
umhverfið er, bæði í hkamlegum og andlegnm skilningi.
Menntun er eitt af því, sem á að hjálpa mönnum til þess
að semja sig betur að hvaða kjörum sem vera skal, en hún
nær aðeins tílgangi sínum á þeim, sem tekst að tileinka
sér menningargildi hennar. Það er sitt hvað, að hafa öðl-
ast þekkingu í einhverju fagi, eða að hafa tileinkað sér
menningargildi þess.
Menningargildi náttúruvísindanna er samúð með nátt-
úrunni, og skilningur á fyrirbrigðum þeim, sem alltaf og
alstaðar eiga sér stað í skauti hennar. Það er aðal-markmið
Náttúrufræðingsins að vekja þessi verðmæti til lifs hjá les-
endum sínum, og í því trausti að það megi takast, hvetur
hann sem flesta til þess að opna dyr sínar fyrir honum.
Kaupendur og útsölumenn Náttúrufræðingsins
eru vinsamlega beðnir að standa skil á andvirði ritsins til
gjaldkera þess, Gísla Jónassonar kennara. Eins og áður
hefur verið auglýst, er gjalddaginn 1. april.
Heimilisfang gjaldkera er:
Grettisgötu, 53 A, sími 1810, pósthólf 712, Reykjavík.
Versl. Vísir LÝSING ÍSLANDS
Lattgavegí 1 Símí 555 BPTIR
Ein af stærstu og þekktustu ný- ÞÖRVAliD THORODDSEN
lenduvöruverzlunum borg-
arinnar. 1. bindi allt og 1. og 2.
M u n ið: hefti annars bindis eru
Versl. Vísír, Seld (\ skrifstofu
Laagaveg 1. ÍSAFOLDAItPItENTSMIB.TU H.F.