Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 25
NÁTTÚRUPR.
87
miklar ályktanir af þessum fundi, þar sem eru aðeins tvö eintök.
En þá má minna á það, sem áður er ságt, að engar þær tegundir,
sem þekkjast frá Fossvogi, eru eindregið arktiskar. Á hinn bóginn
bera margar þeirra frekar vott um hlýju (Fagurskel, Ragna-
hyrna). Keilhack telur Balanus Hammeri Asc. frá Fossvogi. Um
þessa tegund hrúðurkarla gildir auðvitað það sama og um aðr-
ar hrúðurkarlategundir, að nota verður hana með mestu gætni,
ef dæma skal út frá henni um sjávarhita og loftslag. En þó er
Balanus Hammeri nokkuð sérstæður í þessu efni, sakir þess, hve
hann heldur sig í djúpu vatni (sjaldgæfur á grynnra en 40—50
m.). Hans er ennþá hvergi getið þaðan sem sjávarhiti er nega-
tívur. Samkvæmt H. Broch er hann ,,eine rein boreale Art, die
zwar in boreoarktischen Mischgebieten in geringer Zahl vor-
kommt, die aber in hocharktischen Gegenden bei negativer
Temeratur nicht leben kann“ (1)1).
Skeljaleifarnar í Fossvogi gefa hugboð um, hve geysimiklar
breytingar hafa hlotið að ske á sjávarhita og loftslagi landsins,
frá því jöklarnir skófu upp grágrýtið, sem undir skeljalögunum
liggur, og þangað til þeir aftur óku saman þeim ruðningi, sem
ofan á þeim hvílir. Eftir útbreiðslu tegundanna nú á dögum, verð-
ur að ætla, að sjórinn kringum landið hafi ekki verið til muna
kaldari, meðan efri hluti laganna myndaðist, en hann er nú.
Og jöklarnir, sem bæði fyrir og eftir myndun sælaganna, hafa
náð út til stranda, geta vart hafa verið mikið víðáttumeiri, en
þeir eru á okkar dögum.
í fljótu bragði vekur það sannarlega undrun, að menjar
eftir slíkar breytingar skuli ekki þekkjast frá stærra svæði. —
Skýringin á því virðist vera sú, að jöklarnir hafi skafið sæmynd-
anirnar burtu héðan af nesjunum. Dr. Helgi nefnir (5,c.), að
hann hafi fundið skeljabrot í jökulurð á Suðurnesi þar, sem engin
sælög eru sjáanleg. Slíkt hið sama hefi eg fundið í ruðningi ofan
á sælögum skammt fyrir austan Shell.
Fossvogslögin eru máð og slitin eins og illa hirt handrit,
og tjáir ekki um það að fást. Þau verða heldur ekki varðveitt frá
glötun, um það sér Ægir. Hann er þegar á góðum rekspöl með
að naga þau niður. En þeim mun dýrmætari heimildir eru þessi
lög, í nágrenni Reykjavíkur, fyrir jarðsögu landsins.
J) Eindregið kaldtempruð tegund, sem reyndar hittist stundum á takmörk-
um kaldtempraða og kalda svæðisins, en getur þó ekki lifað í „kalda sjónum", þar
sem hiti er undir núll.