Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 30
92
NÁTTÚRUFR.
Finnlandi, Eystrasaltslöndunum og Þýzkalandi. Ættum við því
að geta tekið okkur hana til fyrirmyndar.
Fyrst hefir landinu verið skift niður í rannsóknarhéruð. Síð-
an hafa verið fengnir menn til að gerast sjálfboðaliðar í hverju
héraði til plöntusöfnunar og rannsókna. Sumum þeirra, er þurft
hafa að ferðast langt til, hefir verið greiddur lítilsháttar ferða-
styrkur, oftast undir 100 krónur á ári. Plöntusöfnunin, flóru-
listar og aðrar athugasemdir hafa síðan verið sameinuð á einn
stað undir stjórn þar til kjörinnar nefndar, sem annast hefir um
endurskoðun þeirra, þ. e. nafngreiningu, röðun og skrásetningu.
Hafa söfnin öll verið fengin Grasasafninu í Höfn. Bókfærslunni
er þannig háttað, að allir fundarstaðir hverrar tegundar eru
skráðir í þar til gerðar höfuðbækur, bæði eftir söfnunum og eldri
upplýsingum. Þá eru einnig prentuð smákort yfir landið með
marklínum rannsóknarhéraðanna, og eru tegundirnar, ein á
hverju korti, teiknaðar þar eftir höfuðbókinni.
Til rannsóknar þessarar í Danmörku fengust nægilega margir
sjálfboðaliðar, svo að verkið vannst tiltölulega fljótt. En að söfn-
uninni lokinni var tekið til að vinna úr efni því, er safnast hafði, og
er slíkt ekki minna verk, enda er það enn í byrjun að kalla má.
Rannsókn sú, sem hér er lýst er nær eingöngu það, sem kallað
er ,,floristisk“ rannsókn, þ. e. fjallar um útbreiðslu tegundanna
og einkenni þeirra hið ytra. Er og erfitt með stórum hóp sjálfboða-
liða að framkvæma öðruvísi rannsókn, þegar gera má ráð fyrir,.
að allra fæstir þeirra séu ,,lærðir“ á þessu sviði. En á nákvæmri
,,floristiskri“ rannsókn má aftur byggja margvíslegar líffræði-
legar athuganir. Er hún þannig brautryðjandastarfið.
Þá kem eg að því, er fyrir mér vakir í þessu efnf hér á landi-
Fyrir tveimur árum síðan fékk eg styrk nokkurir frá Náttúru-
fræðideild Menningarsjóðs, sem eg meðal annars skyldi nota til
undirbúnings þessu máli, almennrar gróðurrannsóknar á Islandi.
Fékk eg þá til reynslu nokkra sjálfboðaliða meðal nemendap.
minna og kunningja, og tóku þeir til athugunarsmásvæði, hver í
sínu nágrenni og sendu mér síðan plöntulista og nokkuð af plönt-
um. Af þeirri tilraun lærði eg það, að kleift er að framkvæma
verk, ef sjálfboðaliðar fást. Að vísu er það enn nokkur hindrun,.
að enn eru eigi til kort yfir landið allt, en vitanlega verður þess
ekki mjög langt að bíða héðan af, að herforingjaráðskortin komi
út yfir allar byggðir landsins. Kostnað þann, er af starfinu leið-
ir, ætti Menningarsjóður að bera eftir því sem fé er fyrir hendi.
Skiftingu landsins í rannsóknai'héruð hefi eg hugsað mér