Náttúrufræðingurinn - 1933, Qupperneq 31
NÁTTÚRUFR.
93
þá, að hver hreppur yrði sérstakt hérað, og með byggðunum
fylgdu fjallgarðar á milli dala, svo langt sem dalir ná og næstu
afréttarlönd. Yrðu mörk á milli rannsóknarhéraða á fjallgörð-
um þar sem vötn deila. Með þessu yrðu rannsóknarhéruðin í
byggðum landsins rúm 200, en gera má ráð fyrir að þau yrðu
eitthvað færri, því að litlum hreppum má slá saman í eitt hérað.
Héruðin verða tölumerkt, og tel eg heppilegast að merkja þau í
sömu röð og hreppar eru taldir í Fasteignabókinni nýju, þannig
að byrjað sé austast í Rangárvallasýslu, svo að Austur-Eyjaf jalla-
hreppur verði nr. 1, og haldið síðan vestur og norður fyrir land,
og endað á Dyrhólahreppi. Það sem ráðið hefir því, að eg kýs að
hafa hvern hrepp sem rannsóknarhérað er, að til þess að gott
yfirlit fáist, er nauðsynlegt að héruðn séu fremur smá. Að vísu
verður þá erfiðara að vinna úr söfnum þeim er inn koma, en ár-
angurinn er miklu betri. Eins er líka auðveldara að fá sjálfboða-
liða til að' skoða lítið hérað en stórt. En það sem mestu réði er, að
hverjum fulltíða manni eru kunnug takmörk hreppsins, er hann
býr í, og er það mikill kostur meðan ekki er hægt að prenta kort
með öllum héraðamörkum. Enn hefi eg eigi til fullnustu hugsað
mér, hvernig skifta mætti meginhálendi landsins, en þar mega
héruðin vera miklu stærri, og verða helzt að takmarkast af ám
og vötnum og öðrum náttúrulegum takmörkum. Öræfin verða
heldur eigi skoðuð nema með því að gera út sérstaklega leiðangra
þar til, en eigi með hjáverkastörfum fórnfúsra sjálfboðaliða.
Með greinarkorni þessu beini eg því þeim tilmælum til allra
þeirra manna, er náttúrufræði unna hér á landi og einhvern tíma
hafa aflögu, hvort þeir sjái sér ekki fært að taka til gróðurathug-
nnar eitthvert rannsóknarhérað, einn eða fleiri hreppa. Sízt af
öllu er til þess ætlast, að skoðunin verði framkvæmd á einu ári,
heldur verði smám saman unnið að þessu. Starf sem þetta heimtar
fórnfýsi þeirra er að því vinna, því að launa er ekki að vænta
annara en skemmtunar af vel unnu starfi.
Ef einhverjir skyldi vilja sinna þessu nú þegar, bið eg þá
að láta mig vita um það sem fyrst, mun eg þá senda þeim nánari
fyrirmæli um hvernig starfinu skuli háttað og svar við fyrir-
spurnum þar að lútandi. Eins væri mér kært, ef einhverjir, sem
ættu í fórum sínum plöntulista með nákvæmt tilgreindum fund-
arstöðum, vildu senda þá til yfirlestrar.
Treysti eg því fastlega, að Flóra eigi svo marga fórnfúsa
unnendur víðs vegar um land, að takast megi að hef ja verk þetta
nú með komanda sumri.
Akureyri, á síðasta vetrardag 1933.