Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 17

Náttúrufræðingurinn - 1933, Page 17
NÁTTÚRUFR. 175 frá Noregi, eru nú á Bjarmalandi við Reykjavík; áttu kvendýr- in einnig að vera með fangi, en gutu ekki, og leit ekki út fyrir að þau ætluðu að æxlast. Dýrin á Fossi drápust bæði, veit eg ekki með vissu af hvaða ástæðu. Þegar sýnt var, að dýr það, sem hér var í bænum — Lauga var hún nefnd, heitir raunar fullu nafni Droplaug — kom ekki með unga, var henni með vorinu komið að Miðengi. Ekki varð þess vart, að hún hefði. samfarir með bónda þeim, er henni var fenginn, og bar ekki til tíðinda annað en það, að hún beit eina stallsystur sína svo illa, að hún beið bana af. Leit því enn út fyrir, að tilraunir með' Nútriur. dýr þessi ætlaði að misheppnast. En einn góðan veðurdag, seint í október, fæðir Lauga litla af sér 5 unga og breyttist þá aftur útlitið með dýr þessi. Þykist bóndinn á Miðengi geta kennt sér um, að æxlunin hefir ekki orðið örari, og væntir þess, að kunna betri tök á dýrunum framvegis. öll byrjun er erfið og mega menn ekki búast við, að þeir séu strax orðnir kunnáttumenn í þessari grein, sérstaklega þar sem um svo breytt lífsskilyrði er að ræða, sem hjá þessum dýrum. Þess má geta, að af þeim 3 ungum, sem fæddust í febrúar 1933, drápust 2 ca. mánaðargamlir, en fyrir slysni, sem hægt er að fyrirbyggja framvegis. Það er af dýrunum á Bjarmalandi að segja, að eitt þeirra, karldýr, drapst í ágúst í sumar, snögglega; ástæðan ókunn. En

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.