Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 21

Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 21
NÁTTÚRUFR. 179 ■dýrum, t. d. köttum, en venjulega gera þær það þá nærri strax •eftir að ungarnir fæðast. Var eg þá mikið að hugsa um að taka þessa 3 unga heim til mín og ala þá upp sjálfur, en hugsaði sem svo, að héðan af dræpi hún þá ekki. Eftir rúma viku leit •eg í kassann á ný og þá er ekki nema einn ungi. Nú skildi eg hvernig í þessu mundi liggja. Það var faðirinn, sem mun hafa gert heimsóknir í kassann, með þessum árangri! Nú angraði það mig mest, að hafa ekki tekið ungana fyrir viku. Að vísu hefði eg þá haft Dóru fyrir rangri sök. En nú beið eg ekki boðanna, heldur tók ungann heim. Nú kom nýr gestur á heim- ilið, og þótti börnum mínum eng- inn ami að því að fá hann. Við urðum að fá „túttu“ og pela — af minnstu gerð — því ennþá var þetta pelabarn. Var gam- an að sjá, hvernig hann hélt báðum framfótunum um stút- inn á pelanum, á meðan hann drakk, alveg eins og smábarn. Ef pelinn var settur á gólfið hjá honum, komst hann fljótt á „spenann" ; eins hafði hann vit á að halla pelanum, þegar ekki gaf, lagðist jafnvel á hliðina á gólfið til þess að geta drukkið af pelanum á hliðinni. En ekki hafði hann þó vit á að lyfta upp botni pelans, þegar lítið var •orðið í honum, eins og smáböm gera, og hafði hann þó nógu fullkomnar ,,hendur“ til þess. Þetta var meybarn og var kallað Bína. Varð hún jafnvel •ennþá gæfari en köttur á líku reki. Fengu drengir mínir tveir, 8 og 10 ára, að hafa hana inni í herbergi hjá sér; var búið um hana í kassa úti í horni. En Bína kunni ekki einverunni og komst fljótt á lag með að klifra upp rúmstólpann til drengj- anna. Var hún oft niðri undir sænginni hjá þeim, er þeir vökn- nðu á morgnana! Svo varð hún elsk að börnunum, að hún grét, ef hún var of lengi án þeirra. „Grátur“ var það að vísu ekki, en angur- vært hljóð, sem ekki er hægt að lýsa, líkist helzt ofur-hljóðlátu hneggi. Hafði ég heyrt það áður í eldri ungunum, helzt ef þeim var farið að leiðast eftir matnum. Bína óx nú og dafnaði, jafnvel betur en barnið hennar Siggu. Þótti henni gaman að 12* Bina og Nanna.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.