Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 25

Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 25
N Á.TTÚRUPR. 183 flugi, þess vegna munu fáir, sem ekki þekkja kann, taka eftir honum í veiðibjölluhóp. Útbreiðslusvæði hans er frá Dvína í Rússlandi til Miðjarðarhafs og norður til Færeyja. En hann verpir hvorki á íslandi né Grænlandi. Hvernig stóð nú á þessum gestum hér? Rithöfundurinn Þórir Bergsson, er stóð þarna niður við höfnina, sagði mér, er eg benti honum á fuglana, að hann hefði komið daginn áður með „Lyru“ frá Færeyjum, og að fuglar þessir hefðu elt hana alla leið þaðan, og er mér nær að halda, að svo hafi verið.* Ó. F. Rjtipur á ferðalagí. Um miðjan desember 1919 var eg staddur á Hellisheiði vestan vert við Skálafell. Það var frost og talsverður snjór. Eg heyri vængjaþyt yfir mér, og sé hátt uppi rjúpnahóp, á að gizka 1000 til 1500. Eg hefi aldrei séð rjúpur fljúga eins hátt eins og þessi hópur gerði. Þær komu austan að og héldu í útnorður. Eg horfði á eftir hópnum eins lengi og eg sá til þeirra, og þær lækkuðu ekkert flugið. Þennan sama vetur gerði jarðbönn um allt land, og rjúpur svo að segja hurfu héðan af landi burt. Hvort þær hafa fallið hér af harðrétti eða farið af landi burt, er ekki gott að segja um, en það líður tæplega langur tími, þangað til hægt verður að vita hið rétta í þessu efni. Jón Guðlaugsson. Er skeíðöndín ísíenzk? Seint í maímánuði 1931 tók eg eftir 2 ókunnum öndum, sem seztar voru að hér í enginu á gulstararflæðu. Þetta voru hjón og héldu sig innan um aðrar endur. En þarna er á vori hverju slæðingur af flestöllum íslenzkum andategundum. Eg gerði mér þá þegar mikið far um að komast sem bezt í námunda við þessa fugla, svo að eg sæi þá semgreinilegast og gæti mynd- að mér skoðun um, hvaða tegund það væri, því að svo mikið’ * Sjá annars Náttfr. III, bls. 95, Zöppentin: Sildemaager fra Island.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.