Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 19
NÁTTÚRUFRÆÖIN GURINN
11
Mynd 1. Heil lina: magn af porski á 1000 togstundir hjá hrezkum togurum á íslands-
miöum. Slitin lina: % af þorski, sem merktur er við Grœnland á hverju dri, cn endur-
heimtur við ísland.
veiða okkar. Á árunum 1926—1930 voru veidd við suðurströndina
64.6% alls aflans og við vesturströndina 13.8%, þ.e. samtals 78.4%,
en við norður- og austurstföndina aðeins 21.6%. Hrygningarsvæðið
nær frá Eystra-Horni til Vestfjarða með mestri hrygningu undan
Suðvesturlandi.
í lok ársins fer hrygningarfiskur að safnast saman undan suður- og
suðvesturströndinni. Hann er þá venjulega feitur og lifrarmikill.
Hrygningin byrjar þar seint í marz, nær hámarki um miðjan apríl
og er mestu lokið um miðjan maí. Við vesturströndina byrjar hrygn-
ingin seinna og hættir seinna. Þorskur getur einnig gotið l'yrir Norð-
urlandi, en það er sjaldgæfara og hefur enn sem komið er ekki skipt
máli unr fiskveiðarnar í heild. Þorskurinn hrygnir á milli 20 og
200 m dýpi, en þó mest milli 50 og 150 m.
Vetrarvertíð hefur frá fornu fari hafizt í byrjun febrúar og er að
mestu lokið 11. maí.
Hvað verður nú um allan þenna fisk, sem hrygnir við Suður- og
Suðvesturland? Að lokinni hrygningu er hann orðinn magur, og
ekki er nóg áta lianda honum ;í hrygningarstöðvunum, enda hverfur
mestur hluti hans þaðan um miðjan maí. Nokkuð fer út á djúp-
miðin eða jafnvel út á yztu brúnir landgrunnsins, en þó fer allur