Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 45
NÁTTÚRUFRÆÖINGURINN
37
birti hann 1939 langa ritgerð um rannsóknir sínar á íslandi. Rit-
gerðin heitir Action du vent sur les fórmations volcaniques en
Islande (Áhrif vinda á íslenzkar gosmyndanir). Þótt ekki sé um
margar eiginlegar nýjungar að ræða í þessari ritgerð, er hún hin
skilmerkilegasta og gefur góða mynd af íslenzkum söndum og ís-
lenzkri fokjarðvegsmyndun. Mynd 2 er úr þessari ritgerð og sýnir
þríflötunga nálægt Gunnarsholti. Stt hlið' þeirra, er snýr móti aðal
vindáttinni er fínrákótt af vindsvörfuninni. Það er til merkis um
vandvirkni Cailleux, að hin mörgu íslenzku nöfn, sem koma fyrir
í ritgerðinni, eru nær öll rétt stöfuð, að því undanskildu, að komm-
urnar eru dálítið á ruglingi.
Nýlega barst mér í hendur doktorsritgerð Cailleux, sent hann
varði við Sorbonne-háskóla 1942. Þetta er mikið rit og heitir
Les aclions éoliennes périglaciaires en Europe (Áhrif vinda á hring-
svæði ísaldarjöklanna í Evrópu). í þessari ritgerð er samandreginn
árangur af 9 ára rannsóknum, þ. á. m. rannsóknunum hér heima
1937. Það liggur ótrúlega mikið verk á bak við þessa ritgerð. Caill-
eux, hefur rannsakað um 4010 sýnishorn sands frá öllum heimsálfum
og hann vitnar í 777 ritgerðir. Ýmislegt hefur liann þá aðhafzt um
dagana annað en að rýna á sandkorn, því að ritgerðin er tileinkuð
fjölskyldu lians, og þar eru m. a. talin upp með nöfnum 7 börn, en
slíkt þykir stór barnahópur suður í Frans. Við nánari athugun má
sjá, að hann hefur leikið á nazistana með þessari nafnaupptaln-
ingu, því nöfnunum er þannig raðað upp á forsíðuna, að þau mynda
hinn lothringska kross, sem á hernámsárunum var tákn frelsis-
hreyfingar De Gaulles.
Til samanburðar jarðvegssýnishornanna frá liinum ýmsu lönd-
um hefur Cailleux sérstaklega athugað í sýnishornunum öll kvarz-
korn af stærðinni 0.4—1.0 mm í þvermál. Þessi korn flokkar hann
í fjóra flokka: í fyrsta flokknum eru ónúin hvasshyrnd korn. Þau
hafa myndazt við veðrun og ekki orðið fyrir öðru hnjaski. í öðrum
flokki eru núin, óreglulega löguð og gljáfægð korn. Þau bera merki
vatnssvörfunar. I þriðja flokki eru meira eða minna hnöttótt koin
með möttu yfirborði. Það eru þau korn, sem bera merki vindssvörf-
unar. í fjórða flokknum eru korn, sem eru nreð senrentshúð af ein-
lrverju tagi. I hverju sýnislrorni hefur Cailleux svo reiknað, lrversu
lrá er prósenttala kornanna í þriðja flokki, þ. e. þeirra vindnúnu.
Virðist þessi Samánburður gerður af mikilli nákvæmni. í Evrópu
gætir þessarra vindsorfnu korna nrest á belti, er liggur frá Varsjá