Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1947, Side 48

Náttúrufræðingurinn - 1947, Side 48
Ólafur við Faxafen: Hæð sjávarborðs við strendur íslands Landið stendur ekki kyrrt, það hækkar og lækkar undir fótum vorum. Það gerir það nú, það gerði það fyrir hundrað árum, fyrir tvö hundruð árum, og hefur sennilega gert það frá landnámstíð, ef það hefur þá ekki alltaf annað siagið dúað og vaggað, síðan þurrt larul varð á þessum hluta jarðaryfirborðsins, sem nefndur er ísland. Það er tvisvar stórstreymt og tvisvar smástreymt á hverjum tunglmánuði, alls staðar þar sem sjávarfalla gætir á jörðinni. Og hér við land, (en þó ekki livarvetna á hnettinum, Jrar sem munur er flóðs og fjöru) stígur sjórinn tvisvar og fellur á sólarhring. En þó að stórstraumsflóð séu misjafnlegá mikil, aðallega af mismunandi ólgu sjávarins og áhlaðningi við land, breytist meðalliæð stórstraums- flóða ekki, miðað við ströndina, nema annað komi til. En af |)ví að ísland ýmist liækkar eða sígur, þó að Iiægt fari, þá hlýtur efsta fjöruborð að breytast í samræmi við J^að. En fjöruborðið hér við land er að breytast á ýmsa vegu. Því svo fjarri er það, að Eoldin Ineyfist afls staðar jafnt, að hún er sums staðar að síga, en rís á öðrum stöðum. En hér verður rætt eingöngu um þær breytingar, er stafa af hreyfingu lands, og aðallega þær breytingar, sem eru að verða nú á vorum dögum. Nokkuð verður ])(') að seilast aftur á bak, jafnvel til landnámstíðar. En um sjávarborð, sem eru eldri en byggð lands- ins, verður ritað síðar og sér. Þó að allnákvæmlega sé liér sums staðar frá sagt, er larigt frá, að liér séu öll kurl látin til grafar koma — ekki einu sinni sviðið í hverri gröf.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.