Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 49

Náttúrufræðingurinn - 1947, Síða 49
NÁTTÚRUFRÆBINGURINN 41 Landnám Ingólís Verður nú byrjað á landnámi Ingólfs austanverðu og haldið vestur með landi. Náði landnám lians í fyrstu að Ölfusá, er feður vorir nefndu Hvítá. Fellur áin nú til sjávar úr austurkrika lóns þess, er hún myndar við sjóinn. En ósinn var á landnámstíð nálæg't miðri sandeyrinni, sem er framan við lónið og mun hafa verið nefnd- ur Alfsós. Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns1 — hér eftir til hægð- arauka nefnd bara Jarðábók — getur ýmissa jarða í Ölfusi, er spillzt hafa af sjávarflóðum. En þeim verður slepjrt hér, því betur á við að geta þeirra, þegar kemur að flata landinu, austan Ölfusár. Eini bærinn í Ölfusi, er stendur við sjálfan útsæinn er Þorláks- höfn, en hún er 6—8 rastir frá þeim bæjurn, sem næstir eru. Jarða- bók getur þess (ár 1706), að sjávarbrot grandi þar túni. Síðan fara litlar sögur af þess konar skemmdum þar, en landið þar virðist þó hafa verið að síga, því í stórflóðum flæðir inn yfir allan kamp. Varð mest þess konar flóð þar fyrir um 20 áruin (að líkindum 1925). Á þessum slóðum gerist ströndin klettótt, en endar sendna strönd- in, er nær, svo að segja óslitin, meðfram landinu að sunnanverðu, austur undir Berufjörð. SELVOGUR Engin byggð er í vestur frá Þorlákshöfn, fyrr en komið er í Sel- vog, og eru þarna um 15 rastir milli bæja. Selvogurinn er sérstakur hreppur, og eru þar aðallega tvær byggðir, auk nokkra einstakra bæja. Jarðabók (ár 1706) getur, að sjór grandi að lraman túnunum á Nesi og Bjarnastöðum, og er líkt sagt um túnin í Götu og Þor- kelsgerði. Um Bæjarbúð er sagt, að lendingin sé orðin ónýt, um Eimu, að sjór brjóti framan af túni, og um Vindás, að sjórinn sé búinn að brjóta svo af túninu, að bænum sé varla óhætt lengur. Voru bæði Eima og Vindás komin í eyði fyrir 1750. Urn Snjóthús er sagt í Jarðabók, að sandur og sjávargangur spilli þar túninu ár l'rá ári, og um Sauðagerði, að sjávargangur skemmi árlega meir og 1) Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, er þeir tókn sainan á árunum 1702 til 1712, en ekki var prentuð fyrr en liðlega tveim öldum síðar. Hafa 1,—9. bindi verið prentuð í Káupmannahöfn á áruniim 1913 til 1943 og eru ekki enn komin öll.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.