Náttúrufræðingurinn - 1947, Side 52
NÁTTÚRUIRÆÐINGURINN
44
land þeirra. Hið sama á sér enn stað í tíð séra Geirs, því að hann
segir sjó brjóta þar og bætir svo við: „Ekki eru heldur hjáleigurnar
á Járngerðarstöðum fríar fyrir sjávargangi, t. d. eru Hrafnshús,
sem áður stóðu milli Akurhúsa og Kvílnisa, í seinni tíð flutt þangað,
sem þau nú eru. Kvíhús standa árlega í miklum voða fyrir sjávar-
áfalli, og Jrað sarna má segja um Akurhús, nema herrann vilji enn
meiri miskunn gera.“ Það er að heyra á séra Geir, að hann liafi ekki
búizt við neinu kraftaverki þarna, enda mun ekki hafa af því orðið,
því að hjáleigan er liðin undir lok.
Um liina fornu höfn í Grindavík segir í sóknarlýsingu séra (ieirs
(1840): „Á milli Staðar og Húsatótta, Jió nær Stað og rétt í austur
Jraðan, er höfn sú eður skipalægi, er forðum var siglt upp í Grinda-
vík'. Eru tveir festarhringir með boltunum, sá að austan og norðan-
verðu, enn þá óbrjálaðir í skerjum Jreim er Húsatóttum tilheyra.
En hinn Jrriðji boltinn, en úr honum er hringurinn farinn, er á
Staðarlóð í skeri austur af Sjávarhúsi. Var kaupskip þannig bundið
á þrjá vegu, en atkerum varpað fram af Jrví, og horfði svo á sjó
út í landsuður."
Tvö þessara skerja eru nú alvaxin þangi og eru mjög lág að sjá,
þó að enn komi Jrau upp um fjöru. Segir séra Brynjólfur Magnússon
í Grindavík (1947), að segja megi um Staðarhverfið (og eiginlega
allt byggðarlagið), að sjórinn smámylji niður landið og megi svo
að segja árlega sjá rriun einhvers staðar, þó að mest beri á Jressu í
stórflóðum, því að Jrá beri sjórinn kampinn hærra, og mest í.flóð-
inu mikla, er kom 1925. En í Jrví flóði braut víða stór skörð, er
sjá má með allri ströndinni, en kampinn rak flóðið á undan sér
nokkuð upp á tún. Nokkur luis lögðust Jjá í eyði, en sjórinn gekk
eftir Jjetta svo upp í naustin, að nauðsynlegt þótti að steypa varnar-
garð fyrir framan þau.
Byggð er ekki önnur en sú, er lýst hefur verið, á allri ströndinni
frá Þorlákshöfn til Reykjaness , og er vegalengdin um 70 rastir, Jjó
að í lofti sé farið. En við Reykjanes fer landið að ganga sem næst
beint til norðurs. Er vesturströnd þessa mikla útskaga 30 rasta löng
norður á tá Garðskaga, en syðsti þriðjungur hennar er óbyggður frá
fornu fari. Voru þarna enn tíu rastir með sjó óbyggðar frá Stað í
Grindavík til Kalmanstjarnar í Höfnum, áður en Reykjanesviti
var reistur.
Niðurlag i nœsta hefti.