Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 81
H.f. Eimskipafélag íslands.
Aðalfundur.
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag Islands verður
haldinn I fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík laugar-
daginn 11. júní 1955 og hefst kl. 1,30 e. h.
Dagskrá:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvasmdum
á liðnu starfsári, frá starfstilhöguninni á yfirstand-
andi ári, ástæðum fyrir henni og leggur fram til úr-
skurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember
1954 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoð-
enda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá
endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 7.-9. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félags-
ins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir
eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrá-
setningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar
en 1. júní 1955.
Reykjavík, 10. janúar 1955.
STJÖRNIN.