Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 15

Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 15
FUGLALlF Á SELTJARNARNESI 9 Bakkagranda, vestan óssins, og í ofviðrum gengur stundum sjór yfir báða grandana. Nyrzt í Suðurnesi og á Snoppu er sendið graslendi. Búðagrandi og grandinn við Lambastaðatjöm eru grýttir og svo til gróðurlausir, sömuleiðis austasti hluti Bakkagranda. Stórgrýttir sjávar- kambar eru meðfram ströndinni frá Búðum norður fyrir Suðurnes- vörðu. Við Bollagarða er dálítill klettabakki við sjóinn, og austan- megin í Suðurnesi er um 5 m hár sandbakki með sjónum. Fjaran er stórgrýtt frá Eiði allt út í Gróttu, sömuleiðis í Suðurnesi utanverðu (frá Suðurnesrifi að Búðagranda) og frá Bakka inn að Vegamótum. Á síðastnefndu stöðunum er hún meira aflíðandi og smágrýttari en á hinum fyrri. Þanggrandar eru mestir við Eiði, í kringum Gróttu og við Suðurnes (Suðurnesrif og Búðagrandi) og milli Bakka og Hrólfsskála. Sandfjörur eru við Seltjörn mestalla og milli Búðagranda og Bakkakots. Einnig er dálítil sandfjara rétt fyrir innan Hrólfsskála. Útfiri er einna mest á þessum stöðum. Allar tjarnir á Seltjamarnesi em saltar og grunnar og með leðju- eða sandbotni. Bakkatjörn er þeirra stærst og sú eina, þar sem flóðs og fjöru gætir að ráði, og koma þar upp miklar leirur um háfjöm. í Búðatjörn er lítill grasivaxinn hólmi, hlaðinn af mönnum. Tjörnin í Dal í Suðurnesi er í mýrlendri dæld. Á vorin safnast vatn í Dal á Snoppu, en hverfur, er líður á sumarið, og er þar þá grösugt mjög. Lambastaðatjörn var þurrkuð upp með mikilli fyrirhöfn fyrir nokkr- um ámm, að því er virðist algerlega að ástæðulausu. Er þar nú að- eins leirflag eftir. Fyrir neðan Melshús eru stakkstæði, og þar em einnig tvær hálf- fallnar steinbryggjur og steinveggur mikill. Fisktrönur eru á tveim- ur stöðum á Valhúsahæð, og taka þær yfir allmikið svæði. Stærstu skolpræsin koma til sjávar austan við Lambastaðatjörn og milli IJLrólfs- skála og Melshúsa. Að þeim dragast einkum máfar og vaðfuglar. I Suðurnesi eru 5 háar stefnuvitastengur. Með mannvirkjum sínum og ræktun hefur maðurinn haft mikil áhrif á fuglalíf Seltjarnarness. Auk þess er dálítið skotið af sjófuglum (skörfum, máfum og svartfugli), mjög lítið af stokköndum og svo til ekkert af öðrum tegundum. Minks hefur aðeins orðið vart á svæð- inu, en ekki er hann landlægur. Tvisvar hafa fundizt dauðir minkar, og einn var skotinn fyrir nokkrum árum. Aftur á móti valda rottur tjóni á ungum og eggjum, einkum í Suðurnesi, en þar hafa þær num- ið land á síðustu árum, og virðast þær hafa útrýmt hagamúsum, er áður voru algengar í Suðurnesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.